Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Blaðsíða 47
47
Nefndarálit allsherjarnefndar um skýrslu kirkjuráðs.
Á fund nefndarinnar komu Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup, Agnes M. Sigurðardóttir
biskup Íslands, Steindór Haraldsson kirkjuþingsmaður og Magnús E. Kristjánsson forseti
kirkjuþings.
Nefndin hefur fjallað um skýrslu kirkjuráðs og fylgiskjöl með henni, ásamt ræðum og
ávörpum við upphaf kirkjuþings. Nefndin þakkar orð innanríkisráðherra, Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur einkum varðandi mikilvægi trúar, félagsgjöld þjóðkirkjufólks og samskipti
kirkju og skóla. Einnig tekur nefndin heilshugar undir orð hennar er hún segir: ,,Ég
hvet kirkjuna til að gera allt sem í hennar valdi stendur til að eiga áfram öfluga samleið
með íslenskri þjóð.“ Nefndin tekur einnig undir orð kirkjuþingsforseta, Magnúsar E.
Kristjánssonar, um mikilvægi leikmanna í fjölbreyttu starfi kirkjunnar, sérstaklega þessi
orð: ,,Allir þurfa að stuðla að því að fólk vinni meira saman og að við sé meira notað
orð en þið.“ Nefndin tekur undir orð biskups, Agnesar M. Sigurðardóttur er hún segir
að kirkjan hafi mikilvægu hlutverki að gegna. Hún sé samnefnari samfélagsins, jafnvel
einnig í augum þeirra sem ekki tilheyri henni. Hún standi með fólki í gleði og sorg og sé
öllum opin. Ekki hvað síst komi það í ljós þegar á bjáti.
Fjármál
Allsherjarnefnd fagnar viðleitni ríkisvaldsins til leiðréttingar á sóknargjöldum sem fram
hefur komið. En betur má ef duga skal. Trúfélög hafa mátt þola mikinn niðurskurð síðustu
ár, mun meiri en lagður hefur verið á stofnanir sem heyra undir innanríkisráðuneytið.
Allsherjarnefnd lýsir miklum áhyggjum af afkomu sókna. Er nú svo komið að víða er
örðugt að halda uppi hefðbundnu safnaðarstarfi og telur Allsherjarnefnd því mjög brýnt
að sóknargjöld verði leiðrétt hið fyrsta og skorar á yfirvöld að sjá til þess að það verði gert.
Nefndin væntir góðs af þeim samningaviðræðum sem framundan eru milli ríkis og kirkju.
Skýrsla jafnréttisnefndar
Allsherjarnefnd þakkar skýrslu jafnréttisnefndar þjóðkirkjunnar. Þar er greint frá helstu
niðurstöðum launakönnunar starfsfólks kirkjunnar. Ljóst er að í launuðum störfum
þjóðkirkjunnar er nokkur launamunur milli kynja. Ekki er marktækur munur á fjölda
sjálfboðaliða eftir kynjum í sjálfboðnu starfi innan kirkjunnar. Hlutfall launaðs starfsfólks
sókna hefur minnkað og kemur það ekki á óvart í ljósi mikillar lækkunar á sóknargjöldum.
Nefndin telur afar brýnt að kirkjan haldi áfram að vinna eftir jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar
en þar segir: ,,Kirkjan byggir á þeim grunni sem lagður er af hinum upprisna frelsara.
Skírn inn í það samfélag gerir engan greinarmun á konum og körlum. Kirkjan gegnir þess
vegna mikilvægu hlutverki í miðlun þess boðskapar. Því er jafnréttisstefna viðurkenning
manngildis og jafnréttis allra jarðarbarna.“
Um drög að samningi milli Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og kirkjunnar.
Allsherjarnefnd telur mikilvægt að gott samstarf sé með kirkjunni og GTD um menntun