Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Blaðsíða 19
19
1. mál kirkjuþings 2013
Flutt af kirkjuráði
Skýrsla kirkjuráðs
Inngangur
Kirkjuráð var kjörið til fjögurra ára á kirkjuþingi 2010, en kosið var til kirkjuþings á því ári.
Í kirkjuráði sitja auk biskups Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, sem er forseti kirkjuráðs
lögum samkvæmt, kirkjuþingsfulltrúarnir Ásbjörn Jónsson, sr. Gísli Gunnarsson, sr.
Gunnlaugur Stefánsson, og Katrín Ásgrímsdóttir. Varamenn eru kirkjuþingsfulltrúarnir
Birna G. Konráðsdóttir, sr. Sigurður Árni Þórðarson, sr. Elínborg Gísladóttir og Svana
Helen Björnsdóttir.
Skipulag Kirkjuráðs
Störf kirkjuráðs byggjast á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr.
78/1997 svo og starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000. Þar er kveðið á um verkefni
kirkjuráðs sem fer með framkvæmd þeirra sameiginlegu verkefna þjóðkirkjunnar sem
lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess, m.a. af hálfu kirkjuþings,
prestastefnu, samtaka leikmanna, Alþingis og ráðherra. Kirkjuráð undirbýr kirkjuþing í
samráði við forseta þingsins og forsætisnefnd. Þá undirbýr ráðið þingmál sín, kynnir þau
á þingmálafundum og veitir kirkjuþingsfulltrúum sem þess óska aðstoð við framsetningu
þingmála. Kirkjuráð annast almennt framkvæmd ákvarðana þingsins ef annað er ekki
ákveðið af kirkjuþingi. Kirkjuráð hefur yfirumsjón með fjármálum og fasteignamálum
þjóðkirkjunnar og fer með stjórn Jöfnunarsjóðs sókna og kirkjumálasjóðs og úthlutar úr
sjóðunum á grundvelli umsókna og fjárhagsáætlana stofnana. Í fjármálaumsýslunni felst
m.a. að gera fjárhagsáætlanir og fjárlagatillögur og árita ársreikninga þeirra sjóða sem
ráðið stýrir og leggur fram á kirkjuþingi. Kirkjuráð veitir sóknum margháttaða ráðgjöf um
stjórnsýslu og fjármál.
Kirkjuráðsfundir
Kirkjuráð heldur fundi að jafnaði einu sinni í mánuði á Biskupsstofu og á þessu starfsári
hefur ráðið haldið 18 fundi, þar af þrjá stutta fundi á meðan kirkjuþing 2012 stóð yfir.
Fundur kirkjuráðs þann 12. júní 2013 fór að hluta fram í Selvogi við Strandarkirkju.
Fundur kirkjuráðs þann 15. október 2013 fór fram í kirkjumiðstöðinni á Eiðum á Héraði.
Auk kirkjuráðsmanna og framkvæmdastjóra, sitja að jafnaði fundi ráðsins skrifstofustjóri
Biskupsstofu, fjármálastjóri Biskupsstofu og biskupsritari sem ritar fundargerðir. Forseti
kirkjuþings hefur setið fundi kirkjuráðs þegar málefni kirkjuþings eru til umfjöllunar.
Forsætisnefnd og formenn nefnda kirkjuþings sátu kirkjuráðsfund þann 7. janúar sl. þegar
ræddar voru ályktanir og samþykktir kirkjuþings 2012 og jafnframt sat forseti kirkjuþings
kirkjuráðsfund þann 9. október 2013, þegar rætt var um undirbúning kirkjuþings 2013.
Vígslubiskupar sitja fundi ráðsins þegar málefni biskupsstólanna eru til umfjöllunar.