Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Page 19

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Page 19
19 1. mál kirkjuþings 2013 Flutt af kirkjuráði Skýrsla kirkjuráðs Inngangur Kirkjuráð var kjörið til fjögurra ára á kirkjuþingi 2010, en kosið var til kirkjuþings á því ári. Í kirkjuráði sitja auk biskups Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, sem er forseti kirkjuráðs lögum samkvæmt, kirkjuþingsfulltrúarnir Ásbjörn Jónsson, sr. Gísli Gunnarsson, sr. Gunnlaugur Stefánsson, og Katrín Ásgrímsdóttir. Varamenn eru kirkjuþingsfulltrúarnir Birna G. Konráðsdóttir, sr. Sigurður Árni Þórðarson, sr. Elínborg Gísladóttir og Svana Helen Björnsdóttir. Skipulag Kirkjuráðs Störf kirkjuráðs byggjast á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 svo og starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000. Þar er kveðið á um verkefni kirkjuráðs sem fer með framkvæmd þeirra sameiginlegu verkefna þjóðkirkjunnar sem lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess, m.a. af hálfu kirkjuþings, prestastefnu, samtaka leikmanna, Alþingis og ráðherra. Kirkjuráð undirbýr kirkjuþing í samráði við forseta þingsins og forsætisnefnd. Þá undirbýr ráðið þingmál sín, kynnir þau á þingmálafundum og veitir kirkjuþingsfulltrúum sem þess óska aðstoð við framsetningu þingmála. Kirkjuráð annast almennt framkvæmd ákvarðana þingsins ef annað er ekki ákveðið af kirkjuþingi. Kirkjuráð hefur yfirumsjón með fjármálum og fasteignamálum þjóðkirkjunnar og fer með stjórn Jöfnunarsjóðs sókna og kirkjumálasjóðs og úthlutar úr sjóðunum á grundvelli umsókna og fjárhagsáætlana stofnana. Í fjármálaumsýslunni felst m.a. að gera fjárhagsáætlanir og fjárlagatillögur og árita ársreikninga þeirra sjóða sem ráðið stýrir og leggur fram á kirkjuþingi. Kirkjuráð veitir sóknum margháttaða ráðgjöf um stjórnsýslu og fjármál. Kirkjuráðsfundir Kirkjuráð heldur fundi að jafnaði einu sinni í mánuði á Biskupsstofu og á þessu starfsári hefur ráðið haldið 18 fundi, þar af þrjá stutta fundi á meðan kirkjuþing 2012 stóð yfir. Fundur kirkjuráðs þann 12. júní 2013 fór að hluta fram í Selvogi við Strandarkirkju. Fundur kirkjuráðs þann 15. október 2013 fór fram í kirkjumiðstöðinni á Eiðum á Héraði. Auk kirkjuráðsmanna og framkvæmdastjóra, sitja að jafnaði fundi ráðsins skrifstofustjóri Biskupsstofu, fjármálastjóri Biskupsstofu og biskupsritari sem ritar fundargerðir. Forseti kirkjuþings hefur setið fundi kirkjuráðs þegar málefni kirkjuþings eru til umfjöllunar. Forsætisnefnd og formenn nefnda kirkjuþings sátu kirkjuráðsfund þann 7. janúar sl. þegar ræddar voru ályktanir og samþykktir kirkjuþings 2012 og jafnframt sat forseti kirkjuþings kirkjuráðsfund þann 9. október 2013, þegar rætt var um undirbúning kirkjuþings 2013. Vígslubiskupar sitja fundi ráðsins þegar málefni biskupsstólanna eru til umfjöllunar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.