Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Blaðsíða 43
43
samþykkti áframhald undirbúning þess árið 2012 fær ekki að fjalla efnislega um þau drög að
samkomulagi sem náðst hafði og leiða málið til lykta.
Kirkjuráð þakkar þeim sem unnið hafa að undirbúningi þessa máls af hálfu kirkjunnar, þeim
Bjarna Kr. Grímssyni, kirkjuþingsfulltrúa og formanni fasteignanefndar, Ásbirni Jónssyni,
kirkjuráðsmanni og Guðmundi Þór Guðmundssyni, framkvæmdastjóra kirkjuráðs undir
forystu Kristjáns V. Ingólfssonar vígslubiskups.
Kirkjuráð samþykkti að draga til baka tillögu að þingsályktun um miðaldadómkirkju í
Skálholti, 19. mál kirkjuþings 2013.“
Skipun skólaráðs Skálholtsskóla
Kirkjuráð samþykkti tillögu vígslubiskups að sitjandi skólaráð sæti þar til nýtt kirkjuráð
hefur verið kosið á kirkjuþingi 2014. Samkvæmt því skipa skólaráðið eftirfarandi:
Sr. Halldór Reynisson, verkefnisstjóri á Biskupsstofu, formaður
Sr. Hreinn Hákonarson, fangaprestur
K. Hulda Guðmundsdóttir, Fitjum, Skorradal, fyrrverandi kirkjuþingsfulltrúi
Ásborg Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu
Sr. Egill Hallgrímsson, sóknarprestur í Skálholti
Hörður Áskelsson, kantor í Hallgrímskirkju og fyrrverandi söngmálastjóri
Dr. Pétur Pétursson, prófessor við guðfræði og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.
Skálholtsfélag hið nýja
Kirkjuráð samþykkti beiðni vígslubiskups í Skálholti um að stofna nýtt Skálholtsfélag sem
var síðan stofnað á Skálholtshátið nú í sumar. Það var stofnað á grunni hins eldra og því
sett lög. Það nefnist Skálholtsfélag hið nýja. Fram að fyrsta aðalfundi sem verður 20. júlí
2014 var skipuð bráðabirgðastjórn sem í sitja Guðmundur Ingólfsson frá Iðu, sr. Halldóra
J. Þorvarðardóttir prófastur Suðurprófastsdæmis, Jón Sigurðsson, rekstrarhagfræðingur og
fyrrverandi skólastjóri, K. Hulda Guðmundsdóttir frá Fitjum og Karl Sigurbjörnsson, biskup.
Tónskóli þjóðkirkjunnar
Tónskóli þjóðkirkjunnar starfar samkvæmt starfsreglum um kirkjutónlist á vegum
þjóðkirkjunnar nr. 768/2002. Skólinn starfar eftir námskrá sem kirkjuráð samþykkir.
Skólastjóri er Björn Steinar Sólbergsson, organisti.
Biskup og kirkjuráð hafa haft til athugunar tónlistarmál kirkjunnar sbr. skýrslu starfshóps
um tónlistarmál sem kynnt var snemma á síðasta ári.
Vísað er til bókunar kirkjuráðs frá 24. maí 2012 en þar segir m.a:
Kirkjuráð felst á þá meginstefnu sem birtist í skýrslunni og tillögur nefndarinnar.“
Með hliðsjón af samþykkt Kirkjuþings í 1. máli 2012 um tónlistarmál kirkjunnar ákvað
kirkjuráð að óska eftir því að biskup afli álits þriggja manna ráðgefandi starfshóps
til að leggja mat á framangreinda skýrslu og móta frekari tillögur um framtíðarskipan
tónlistarmála kirkjunnar. Starfshópurinn skili áliti sínu til biskups fyrir 1. apríl 2013.
Kirkjuráð samþykkti að fela stjórn Tónskólans að framlengja tímabundinn ráðningar
samning við skólastjóra Tónskólans fram til 1. júní 2013. Þá yrði starfið lagt niður