Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2012, Side 33
að viðkomandi axli ábyrgð sína.54 í greinargerðinni sem fylgdi upphaflegum
starfsreglum um meðferð kynferðisbrota innan kirkjunnar er talað um
nauðsyn þess að hugað sé að „inntaki og notkun hugtaka sem gegnt hafa
lykilhlutverki í kristnum boðskap.“ Fyrirgefningin er eitt þeirra hugtaka sem
gegna mikilvægu hlutverki þegar um er að ræða kynferðisbrot. Þannig hefur
Marie Fortune lagt áherslu á fyrirgefninguna og nauðsynlega endurskoðun á
hefðbundinni túlkun hennar innan kristinnar kirkju. Fortune telur að það
þurfi að tryggja að fyrirgefning sé ekki notuð til að afsaka eða hylma yfir
með gerandanum, í þeim tilgangi að láta eins og ekkert hafi gerst. Það sé
heldur ekki alfarið á ábyrgð þolandans að fyrirgefa, en oft sé viðkomandi
beittur þrýstingi til að „fyrirgefa“ (í merkingunni „forgive and forget“) þeim
sem brotið framdi. Þannig eigi fyrirgefningin sér aldrei stað í tómarúmi
og geri alltaf tilkall til þess að sá sem braut af sér axli ábyrgð. í raun fjalli
fyrirgefningin því fyrst og fremst um það að þolandinn leyfi því sem átti
sér stað ekki lengur að stjórna lífi sínu, heldur sé tilbúinn til þess að sleppa
takinu og öðlast frelsi undan áhrifum þess.55
Vald er annað hugtak sem vert er að skoða í þessu samhengi.
Guðfræðingurinn Wendy Farley, sem er prófessor við Emory háskólann
í Atlanta í Georgíufylki í Bandaríkjunum, hefur mikið fjallað um endur-
skoðun valdahugtaksins út frá guðfræðilegum forsendum. Farley telur
sérstaklega mikilvægt að hugmyndir okkar um vald Guðs séu skoðaðar út frá
reynslu okkar af valdi og misnotkun þess í mannlegum samskiptum. í stað
þess að skilja vald Guðs út frá drottnandi valdi, eins og við þekkjum það
úr okkar daglegu reynslu, leggur Farley áherslu á að vald Guðs sé skilið sem
samlíðan (e. compassion). Hér er ekki átt við að Guð sjái aumur á okkur
eða vorkenni okkur, heldur sé það í samlíðaninni sem Guð opinberar vald
sitt á meðal okkar.56 Nancy Ramsay, sérfræðingur í sálgæslufræðum, notar
Davíðssálma 22 og 23 til að útskýra hvað felst í hugmynd Farley um vald
sem samlíðan. Samkvæmt Ramsay þá kemur það vel fram í þessum sálmum
hvernig samlíðan á sér stað mitt í illskunni og birtist sem raunverulegt
vald sem er hvorki stýrandi né drottnandi, heldur opinberast í kærleika
og umhyggju. Samlíðanin gerir hvort tveggja í senn, að gefa kraft og veita
54 Sólveig Anna Bóasdóttir gerir grein fyrir þessum „freistingum kirkjunnar" í grein sinni „Kirkjan og
kynferðisofbeldi. Gerendur kynferðislegs ofbeldis - frá guðfræðilegu og siðfræðilegu sjónarhorni“,
bls. 147-148.
55 Fortune 1998, bls. 53.
56 Farley 1998, bls. 15-17.