Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2012, Page 39
Hvernig er mögulegt að minnast prests kenning.?
Ef ég prédikunar athuga þrenning:
Fyrst laring þá sem lœtur upp hið sanna,
hvar á sig festir heilög trú manna.
Annað er áminning öllum til betrunar,
sem varar við illu svo verði' ei til hindrunar.
Þriðja er huggun sœt i sorg hvers konar
sem glœðir upp geð manns til góðrar vonar.3
Passíusálmarnir voru ekki fyrsta tilraun Hallgríms til að yrkja biblíuljóð
og hvorki fyrsta né síðasta tilraun íslendings á því sviði.4 Fyrir og um daga
Hallgríms höfðu mörg biblíuljóð verið ort og sjálfur hafði Hallgrímur ort
nokkur slík. Flest biblíuljóða hans voru í su'l við þau biblíuljóð sem algengust
voru um fram á daga hans eða ortar endursagnir tiltekinna biblíurita eða
frásagna. Þannig orti hann ljóð út frá nokkrum frásögum Gamla og Nýja
testamentisins, Davíðssálm 23 orti hann í ljóð og eins orti hann ljóðabálk
út frá Samúelsbókum. Þá orti hann kvæðabálk um píslarsöguna og annan
um upprisuna. Passíusálmarnir skera sig hins vegar úr að því leyti að í þeim
fer saman endursögn sögunnar og útlegging hennar til lærdóms, áminn-
ingar og huggunar eins og hann orðar það sjálfur. Þess konar aðferð eða
framgangsmáti sem Hallgrímur styðst við í Passíusálmunum nefnist íhugun,
meditation, og var einmitt að ryðja sér til rúms í nágrannalöndum okkar
um daga Hallgríms.5 I íhugun vilja menn gera meira en miðla sögu eða
endursegja heldur vilja menn draga fram merkingu sögunnar. Sá sem íhugar
gengur svo að segja inn í atburðinn, gerist þátttakandi í honum og miðlar
því sem sagan greinir frá svo að við megum læra, láta áminnast og hljóta
uppörvun. Hverjum sálmi má því skipta í fjóra hluta sem eru söguhlutinn,
lærdómshlutinn, áminningarhlutinn og loks huggunarhlutinn.
Þessi íhugunarhefð sem Hallgrímur er fulltrúi fyrir var mjög farin að
ryðja sér til rúms meðal lútherskra manna um daga Hallgríms. Dr. Margrét
Eggertsdóttir skrifaði doktorsritgerð um Hallgrím Pétursson og kveðskap
3 Hallgrímskver 1952, s. 310-311.
4 Sjá Visnabók Guðbrands 2000 sem geymir mörg biblíuljóð og rímur. Síðasta skáldið sem mun hafa
ort biblíuljóð með skipulegum hætti var séra Valdimar Briem. Sjá einnig Sigurbjörn Einarsson
2008, Eigi stjörnum ofar, s. 72 og 181-183.
5 Sjá J.A. Steiger 1997, Johann Gerhard (1582-1637) - Studien zu Theologie und Frömmigkeit des
Kirchenvaters der lutherischen Orthodoxie. Doctrina et pietas. Band 1.
37