Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2012, Page 141
Tribonian, að með þessum hætti lenda ýmsar tilskipanir heiðinna keisara
með, t.d. tilvitnanir í hin heiðnu lög rómverska lýðveldisins, Tólftöflulögin.
Verk Tribonians, Codex Juris Civilis, er í heild sinni á netinu, bæði á latínu
og ensku.41
í inngangi að lögbókinni, sem seinna fékk nafnið Corpus Juris Civilis,42
lofar keisarinn náðugan Guð og þakkar honum. Síðar segir: Grunnur
þessara laga er að menn lifi heiðarlega, meiði ekki hver annan og hver fái
það sem hann á. Þetta er í fullu samræmi við boðorðin 10 og Nóalögin,
en hvorugt er nefnt á nafn43. Hvorki Nóalög né boðorðin fá raunverulegt
lagagildi svo þarna brotnar sú þróun sem byrjaði með endurgjaldslögum í
stað ættarblóðhefndar hjá flestum þjóðflokkum. Þetta gerir erfitt að rekja
ákvæði Corpus Juris Civilis til gyðingdóms (t.d. Septuagint) þó guðsdýrkun
og góðir siðir eigi að svífa yfir vötnunum. Tengslin við Rómarétt eru hins
vegar vandlega rakin í verkinu sjálfu. Hugsanlega telja margir fræðimenn
að þróunarbrautin liggi frekar þar í gegn, því Tólftöflulögin, sem getið er
að góðu einu í Corpus Juris Civilis, byggjast líka á endurgjaldslögum alveg
eins og upphaflegur gyðingdómur. Við þessa skoðun verður hinsvegar að
gera þá athugasemd, að kristin áhrif eru ótvíræð í bókinni og kristnin er á
þessum tíma ennþá helleniskur gyðingdómur að miklu leyti, að viðbættum
kenningum Krists sem færa trúarbrögðin, og þar með þann lagagrunn sem
trúaðir eiga að lifa eftir, nær nútímanum og fjær endurgjaldslögum. En sá
jafnræðisandi sem með réttu á að ríkja í kristnu ríki víkur um sinn, og menn
fá að semja sig frá afbrotum með fébótum. í þessu felst brotið og það á eftir
að hafa alvarlegar afleiðingar.
Hvers vegna er þetta gert svona? Ríkið er kristið, kirkjur margar og
keisarinn gerir sér far um að vera Guði þóknanlegur. Samt ritar hann lögbók
sem í fljótu bragði gæti virst meira ættuð úr heiðnum sið en kristnum, þó
svo sé ekki í raun. Hans fræðimaður, Tribonian, vitnar í náttúrulög án þess
að minnast á Aristóteles eða Nóalög, sem hann hefur vafalítið þekkt.44
41 Corpus Juris Civilis; http://www.constitution.org/sps/sps.htm (Ensk þýðing)
42 Corpus Juris Civilis; http://en.wikipedia.org/wiki/CorpusJuris_Civilis ásamt 9 tilvitnunum
43 Ymsar ástæður geta legið til þess að Tribonian notar sama lagagrunn og Biblían án þess að nefna
hana á nafn. Gyðingar voru ekki með öllu vinsælir í Rómaveldi í lok fornaldar, róstur milli þeirra
og Grikkja voru tíðar, sérstaklega í Alexandríu. Tribonian skilgreinir líka náttúrulög en minnist
ekki á Nóalög. En í textanum eru tvær tilvitnanir sem telja má úr fimmtu Mósebók. Síðar bætir
Leó keisari við einni tilvitnun í Móse, efnislega sjöunda lögmáli Nóa (Tilskipun 58).
44 Þetta er hundrað árum áður en íslam kemur til sögunnar og hertekur allar menningarstöðvar
sunnan Býsans, t.d. bókasafnið í Alexandríu.
139