Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2012, Síða 142
EfTribonian hefði leyft sér að vitna til Nóalaga, eða boðorðanna 10 hefði
hann átt mun auðveldara með að samræma tilskipanir hinna ýmsu keisara
og fella þær brott sem úreltar voru og efla þannig vald keisarans. En hvað
gengur Tribonian til, að vilja ekki nota þennan möguleika til að hafa meira
lagatæknilegt svigrúm? Vill hann ekki hleypa klerkum að verkinu með allt
þeirra trúarþras? Taldi hann með öllu óæskilegt að áhrif gyðinga sæjust á
verkinu? Hér má ekki gleymast, að á þessum tíma eru sumir textar í Sjötíu
manna þýðingunni þegar orðnir nær tvö þúsund ára gamlir og allt tal um
hirðingjalíf auðvitað gamalt rugl fyrir hátt setta Rómverja, fyrir utan ýmsar
kreddur í bókinni sem Rómverjum hefur í besta falli þótt fyndnar. En það
fer ekki milli mála að þarna sleppir Tribonian tækifærinu til að slá því föstu
með beinum hætti að grunnur laganna sé frá Guði almáttugum, sem hefði
gefið verki hans allt aðra vigt í framtíðinni.
Allt þetta kemur til greina, en eðlilegasta skýringin er væntanlega sú, að
Justiníanus er rómverskur keisari með rómverska stjórnsýslu undir sér þar
sem hann þarf að hafa hemil á einræðistilburðum héraðsstjóra38 og hans
maður, Tribonian, er hátt settur embættismaður af æðstu stétt Rómverja.
Corpus Juris Civilis er að þessu leyti til beint framhald af starfi annarra
keisara og hugsanlega er Justiníanus að ganga þannig frá málum að þessi
staðreynd sé öllum ljós, honum hafi þótt þessi aðferð betur fallin til að
styrkja stjórnvald sitt sem keisara.
Útkoman er svo lögbók þar sem verulega þarf að skyggnast undir yfir-
borðið til að sjá áhrifin frá hinum nýja sið, en þau eru þarna. Síðari keisarar
reyna að bæta eitthvað úr þessu, og setja inn ýmis ákvæði um réttindi
kvenna, barna og þræla sem eru engin í heiðnum rómverskum lögum.45
Corpus Juris Civilis hafði gríðarleg áhrif í hinum kaþólska heimi, sérstak-
lega í Býsans en líka á Italíu þó það færi ekki hátt. En fleiri spor markaði
Býsans ekki í lagaheimi vesturálfunnar þó ríkið stæði í nærri þúsund ár. Það
kom í hlut annarra manna að slá því föstu að lögin kæmu frá Guði.
Corpus Juris Canonici
Það væri of langt mál að telja upp allt það sem stuðlaði að útgáfu þessa
verks, sem telja má til endurreisnarinnar, aðeins fátt eitt skal tínt til.
íslam skekur Evrópu með landvinningum sínum í Miðausturlöndum og
Norður-Afríku allt til Spánar. A svipuðum tíma fer að bera á víkingum í
45 Berman, H. J., 1979: Interaction ofLaw and Religion. Humanides in Society, 2, 53 - 54.
140