Orð og tunga - 01.06.2008, Blaðsíða 121
Bókafregnir
Corbell, Jean-Claude, Archambault, Ariane. Stóra mynd-
orðabókin um allt milli himins ogjarðar. íslenska, enska, þýska,
franska, spænska. Mál og menning, Reykjavík 2007. ISBN
978-9979-3-2835-3.
Stóra myndorðabókin var samin og framleidd af QA International í
Kanada. Hún er hugsuð sem orðabanki yfir hluti og fyrirbæri hvaðan-
æva úr nánasta umhverfi notandans jafnt sem flóknu tæknimáli.
Henni er ætlað að nýtast fagfólki, námsmönnum og öllum þeim sem
þurfa að þýða texta úr íslensku yfir á ensku, þýsku, frönsku eða
spænsku en auk þess veitir hún svör við fjölmörgum spurningum sem
upp koma í daglegu lífi. í bókinni eru 32.000 flettur og um 6000 mynd-
ir.
Bókinni er skipt í þrjá hluta: inngangssíður með efnisyfirliti og
lykli að efnisflokkum, meginhluta í 17 köflum og atriðisorðaskrá. Um-
sjón með íslenskri útgáfu hafði Pétur Hrafn Ámason en forlagsritstjóri
var Laufey Leifsdóttir.
Spænsk-íslensk orðabók. Diccionario espahol-islandés. Rit-
stjóm: Guðrún H. Tulinius, Margrét Jónsdóttir, Ragnheið-
ur Kristinsdóttir, Sigrún Á. Eiríksdóttir, Teodoro Manrique
Antón. Mál og menning, Reykjavík 2007. ISBN 978-9979-3-
2897-1.
Nýlega kom á markað ný Spænsk-íslensk orðabók en mikil þörf var orð-
in á orðabók af þeirri gerð. Til grundvallar var lagður gagnagrunn-
ur að spænsk-enskri orðabók HarperCollins sem hefur gefið út fjölda
orðabóka og nýtur viðurkenningar á því sviði. Áhersla er lögð á að
hafa góðan orðaforða úr daglegu máli en einnig á sértækan orðaforða