Orð og tunga - 01.06.2008, Blaðsíða 114
104
Orð og tunga
Þessi orð fundust hins vegar:
(4) aðgangsorð, áhættufjármagn, beinþynning, einhverfur, einka-
væða, einræktun, farsími, fartölva, fjarhitun, geislaspilari, les-
blinda, margmiðlun, netfang, streita, tungutækni, tölvuþrjót-
ur
Athugað var hversu mörg þessara orða útgáfa íslenskrar orðabókar frá
2002 innihéldi. Reyndust það vera öll orðin í (4), að orðinu fjarhitun
frátöldu, og tæpur helmingur orðanna í (3).
Vart þarf að taka fram að langfæst nýyrðanna í (3) og (4) fundust í
ÍO frekar en búist var við þar sem þessi orð eru öll frekar ný af nálinni,
en það var þó kannað sérstaklega til að ganga úr skugga um það. Að-
eins orðin lesblmda og streita voru í bókirmi enda líklega nokkuð eldri
orð en flest hinna.
Sum nýyrðanna sem leitað var að eru líklega svo ný í málinu að
þau hafa ekki verið orðin útbreidd meðan á vinnu við ÍF stóð og því
kann að þykja til of mikils mælst að ætla þeim öllum stað í bókinni.
Mörg þessara nýyrða sem voru í útgáfu íslenskrar orðabókar frá 2002
reyndust sérmerkt ýmsum sviðum, svo sem viðskiptafræði, tölvum
og stjómsýslu, en flestþeirra skírskota hins vegar til nútímasamfélags-
hátta og eru mjög tíð í almennri umræðu og því má telja fulla ástæðu
til að vænta þeirra í almennri orðabók.
Niðurstaða þessa samanburðar er sú að orðaforðagrunnur /F er
í stærstu dráttum hinn sami og í ÍO. Allnokkur grisjun hefur þó átt
sér stað því uppflettiorðum hefur verið fækkað töluvert með hlutverk
bókarinnar sem tvímála bókar að leiðarljósi. Á hinn bóginn er einnig
nokkuð um viðbætur frá höfundi, bæði nýyrði sem önnur orð.
4 Uppbygging flettugreina
Eins og fram kom í kaflanum hér að framan er orðaforði ÍF að mestu
fenginn frá /O. Það ætti því ekki að koma á óvart að hið sama gild-
ir um formlega uppbyggingu flettnanna og hvemig málfræðilegum
upplýsingum um flettiorðin er hagað. í þeim efnum er farið eftir hin-
um aðfengna gmnni úr ÍO í nánast óbreyttri mynd að því undanskildu
að undirflettum hefur verið fækkað allverulega. Umfjöllim um flettu-
greinarnar hlyti því að beinast í raun allt eins, eða jafnvel enn frekar,
að ÍO eins og að ÍF og því verður skipan flettugreina einungis gerð