Orð og tunga - 01.06.2008, Blaðsíða 124
114
Orð og tunga
Nokkuð var misjafnt hversu fræðilegir fyrirlestrarnir voru. Eins
og við mátti búast var einkum fræðilegur fengur að fyrirlestrum há-
skólakennara en sum önnur erindi báru þess merki að fyrirlesarar fást
við íðorð á afmörkuðu sviði og á einn tiltekinn hátt, s.s. við upplýs-
ingamiðlun innan ákveðinnar stofnunar, og völdu að segja einkum
frá kynningaraðferðum og tækni við vörslu og framsetningu á sér-
hæfðum upplýsingum. Meðal þeirra sérgreina, sem dæmi voru tekin
af í erindum á ráðstefnunni að þessu sinni, má nefna hagfræði, heil-
brigðisvísindi, eldvamir, skógrækt, olíuvinnslu, vistfræði, námskrár,
jarðfræði og lögfræði.
Sjálfum þótti mér e.t.v. einna merkilegast að þessu sinni að svo
virðist sem samheiti og önnur tilbrigði í fagtextum eigi nú loksins
upp á pallborðið: fleiri og fleiri hverfa frá gömlu kennisetningunni um
að hvert hugtak skuli aðeins táknað með einu heiti. Þá mátti einnig
merkja betur en stundum áður að margt íðorðafólk hefur rekið sig á
að skilgreiningar og skýringar á hugtökum þurfa að geta verið breyti-
legar eftir því hver markhópurinn er hverju sinni.
Norrænu íðorðadagarnir 2007 voru hinir fjölmennustu til þessa,
skráðir þátttakendur vom 152 talsins. Ráðstefnurit er væntanlegt, í rit-
röð Nordterm-samtakanna.
Ari Páll Kristinsson
Orð, orð og aftur orð á Akureyri
Frásögn af 9. norrænu orðabókaráðstefnunni
1 Inngangur
Dagana 22.-26. maí 2007 söfnuðust rúmlega 100 orðabókafræðingar
saman á Akureyri. Skandinavar, Finnar, Islendingar og ein tékknesk
stúlka sóttu þar 9. ráðstefnuna um orðabókafræði á Norðurlöndum,
sem þá var haldin í annað sinn á íslandi. Að ráðstefnunni stóðu Nor-
ræna orðabókafræðifélagið, Stofnun Áma Magnússonar í íslenskum
fræðum og Málráð Norðurlanda. Alls vom haldin um 40 erindi. Ekki