Ráðunautafundur - 15.02.1999, Blaðsíða 85
77
magn þarf eftir því hversu sendinn jarðvegurinn er. Einnig hefur gerð jarðvegs áhrif á vaxtar-
hraða og þroska kornsins. Vextir eru breytilegir frá einum tíma til annars. Heimsmarkaðsverð
ú korni ræður í raun mestu urn hvenær íslensk komrækt telst hagkvæm, þar sem innflutt kom
er sú afurð sem íslenska kornræktin þarf í raun að bera sig saman við. Gengi íslensku
krónumiar er einnig áhrifavaldur hvað varðar innflutt kom. Sala á hálmi getur aukið hag-
kværnni hjá hluta kornræktenda. Þar er einnig sóknarfæri ef tekst að þróa nýja notkunarmögu-
leika. Skiptirœklun getur aukið hagkvæmni kornræktarinnar, jafnframt því sem þar opnast leið
til að endurrækta tún með hagkvæmum hætti. Reynsla kornræktenda getur skipt máli, því
aukin þekking leiðir jafnan til betri árangurs. Loks getur veðurfar valdið því að uppskera
bregðist, vegna ólragstæðra veðurskilyrða á afmörkuðum svæðum eða jafnvel um landið allt.
NIÐURSTÖÐUR
Það er niðurstaða Hagþjónustu landbúnaðarins að hagkvæmt sé að stunda kornrækt hér á
landi sem aukabúgrein miðað við votverkun, enda stuðli ræktunin að bættri nýtingu fyrir-
liggjandi jarðnæðis, bygginga og vélalcosts.
Með skírskotun til áður skilgreindrar lágmarkseignar tækja og búnaðar, og kostnaðarhlut-
deildar þeirra, var metinn kostnaður við kornrækt á búum sem hafa u.þ.b. 5 ha ræktun út frá
tveimur verkunaraðferðum, þ.e. votverkun í stórsekkjum og þurrverkun miðað við aðkeypta
þurrkun. Með hliðsjón af þeim forsendum og miðað við 3.500 kg/ha meðaluppskeru (85%
þurrefni; hieinsað korn) reiknast kostnaðarverð á íslensku votverkuðu byggi 17,60 kr/kg
samanborið við 20,20 kr/kg á innfluttu byggi. Miðað er við að hvoru tveggja sé komið í hús
og tilbúið til gjafar. Kostnaðarverð á íslensku votverkuðu byggi reiknast því 12,8% lægra en
á innfluttu byggi. Samkvæmt sömu forsendum reiknast kostnaðarverð á íslensku þurrkuðu
byggi 22,12 kr/kg samanborið við 20,20 kr/kg á innfluttu. Kostnaðarverð á íslensku þurrkuðu-
byggi er því 9,5% hærra en á innfluttu byggi.
Nær allur kostnaður (m.v. aðkeypta þreskingu) er breytilegur, eða 98%; þar af er 87%
beinn breytilegur kostnaður. Af þeim sökum er bæði auðvelt fyrir bændur að hefja komrækt
og að hætta kornrækt án mikillar fjárhagslegrar áhættu.
Hagkvæmni kornræktar ræðst einkum af uppskerumagni, verkunaraðferð og nýtingu fjár-
magns. Hérlendis er algengast að kornbændur sái í minna en 5 ha lands. Svo lítil framleiðsla
stendur ekki undir fjárfestingu í þreskivél og er ekki hagkvæmt að Qárfesta í eigin vél, nema
skornir séu a.m.k. 64 ha.
Hagkvæmni votverkaðs korns greinist jákvæð við 3.050 kg/ha uppskeru. Flestir bændur
ná uppskerumagni yfir þessum mörkum og er meðaltalsuppskeran sem notuð er í skýrslunni
3.500 kg/ha. Þeir bændur sem á annað borð hafa möguleika til komræktar eiga því að geta
aukið hagkvæmni á búum sínum með því að rækta lcorn og votverka til eigin nota. Ef þurrka á
kornið þarf uppskera hins vegar að ná a.m.k. 3.800 kg/ha. í mörgum tilvikum er þurrkun
óhagkvæm, því aðeins hluti bænda nær nauðsynlegri uppskem á hektara til þess að þurrkun
reiknist hagkvæm. Það skal þó tekið fram að óvissuþœttir í rekstrammhverfinu, svo sem
heimsmarkaðsverð á korni, gengi íslensku krónunnar og veðurfar geta hver um sig haft mikil
áhrifú núverandi stöóu kornrœktarinnar.