Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2016, Page 105

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2016, Page 105
104 er dauðafúga leikin á vatnaflygil, þar sem mannleg samskipti eru tengd tómleika úthafsins sem er „dimmara og svartara en heiðasti / himinn og djöfullega þögult“.4 Þegar líða tekur á ljóðið vakna óþægilegar spurningar um getuna til þess að koma upp nýjum afkvæmum, því að „fuglsegg eru brothætt og / […] bragðgóð“ og „barnið þarf / […] (sólarhrings)vernd þótt ekki sé það / vegna bragðsins“. „Hvar / ertu?“ spyr ljóðmælandinn vænt- anlegan maka sem ber að taka þátt í því að vernda afkvæmin, en sjálf spurn- ing og niðurstaða ljóðsins endurspegla á einhvern hátt ugg sem Naomi Klein gerir að sérstöku umræðuefni í bók sinni um loftslagsbreytingar, This Changes Everything. Þar setur hún eigin erfiðleika við að eignast barn í samhengi við endurnýjunarrétt náttúrunnar. Síðasti hluti bókarinnar snýst um endurtekin fósturlát hennar og erfiðleika margra dýrategunda við að koma afkvæmum sínum á legg, meðal annars vegna loftslagsbreytinga og almennrar mengunar. Klein spyr sig þeirrar spurningar hvort næsta útþurrkun muni kannski fyrst og fremst snúast um þennan vanda og hvort nýja táknmyndin fyrir móður náttúru sé óbyrjan.5 Ljóði Sigurbjargar lýkur á opinberun, á skilningi sem kannski er ekki síst ógnvænlegur vegna þess að niðurstaðan er aldrei færð í orð: „það er svo langt síðan / ég hef horft / í augun á einhverjum þegar ég vakna // einhverjum sem / veit“. Uggurinn sem fylgir hinu ókomna vaknar líka með lesandanum í „Andvökusennu“ Antons Helga, þar sem saga mannsins fyrir breyting- arnar miklu er sögð á einföldu máli, nánast eins og lesin sé þula fyrir barn kringum háttamál, aftur og aftur. Í endurtekningunni býr hugfró, tilfinn- ing fyrir því að hægt sé að snúa aftur á sama staðinn og endurtaka leikinn, þótt sagan sé hugsanlega raunaleg. „Segðu mér söguna aftur / þá sem þú sagðir í gær“ segir ljóðmælandinn í fyrstu línunum og lesendur sem komn- ir eru til ára sinna hugsa til litlu stúlkunnar með „ljúfu augun / og ljósu flétturnar tvær“ sem Jóhann Magnús Bjarnason orti um, en ljóðið var um árabil sungið fyrir íslensk börn.6 4 Freistandi er að tengja myrkt úthafsmyndmálið í ljóði Sigurbjargar gegndarlausri ofveiði fiskistofna og áhrifum loftslagsbreytinga á vistkerfi úthafanna. Af forvitni- legum bókum um það efni má nefna Richard Ellis, The Empty Ocean. Plundering the World’s Marine Life, Washington, Covelo, London: Island Press 2003; og Oceans and Marine Resources in a Changing Climate. A Technical Input to the 2013 National Climate Assessment, ritstj. Roger Griffis og Jennifer Howard, Washington, Covelo, London: Island Press 2013. 5 Naomi Klein, This Changes Everything. Capitalism vs. the Climate, London: Allen Lane 2015, bls. 419–448. 6 Ljóð Jóhanns Magnúsar Bjarnasonar hefst á línunum: „Segðu mér söguna aftur / – Guðni ElíSSon
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.