Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2016, Síða 12
11
yfir málara sem málar kynferðislegar myndir með vændiskonur sem fyr-
irsætur, þ.e. í merkingunni „hórumálari“.6 Þetta orð fellur þannig vel að
hefðbundnum skilgreiningum femínista á klámi: Framsetning (graphia) á
konum sem kynferðislegum hlut til kaups og sölu (pornê).7 En þetta þýðir
ekki að fornaldarmenn hafi þekkt eða notað hugtakið klám eins og við
þekkjum það og notum í dag. Raunar er það umdeilanlegt að það hugtak
sé almennt nothæft í fræðilegri umfjöllun um Grikkland og Róm til forna,
þrátt fyrir þennan uppruna orðsins pornographia. Þetta stafar af miklum
framandleika kynferðishugmynda fornaldar.
Í verki sínu Sögu kynferðisins greinir franski heimspekingurinn Michel
Foucault þennan framandleika forna heimsins frá okkar eigin. Samkvæmt
Foucault byggðist kynlífsskilningur fornaldar á tilraunum og reynslu hvers
og eins; reynslan var ekki talin lýsa innri manni þess sem hana átti, heldur
var hún eingöngu kölluð góð eða slæm út frá samfélagslegum hugmyndum
um sjálfstjórn, hóf og líkamlegt heilbrigði. Hömluleysi í kynlífi var af hinu
slæma, en á sama hátt og hömluleysi í t.d. áti og drykkju. Kynhvötin hafði
engan sérstakan sess í karakter hvers manns.8 Þennan kynferðisskilning
kallaði Foucault ars erotica, sem mætti þýða sem „listina að þrá“; hinn vest-
ræna, nútímalega skilning kallar hann hinsvegar scientia sexualis, „kynþekk-
ingu“, sem miðar að játningu borgaranna á kynferðislegum hugsunum og
gjörðum sínum til æðra valds og flokkun þeirra að ofan í vísindaleg kerfi.
Hið kynferðislega er tekið út fyrir ramma sem aðgreindur og djúpstæður
hluti af lífi og karakter hvers manns, sjálfstætt frá öðrum þáttum daglegs
lífs.9
annarsvegar og fiskát hinsvegar. Um Aþenæos og klám í fornöld, sjá Madeleine
M. Henry, „The Edible Woman. Athenaeus‘ Concept of the Pornographic“,
Pornography and Representation, bls. 250–268.
6 Ath. 13.567b3–8. vísanir í fornaldarrit fylgja hinu hefðbundna skammstafanakerfi
höfunda innan klassískra fræða; yfirlit yfir það má finna í The Oxford Classical
Dictionary, ritstj. Simon Hornblower & Antony Spawforth, 3. útg. Oxford: Oxford
University Press, 2003, bls. xxix–liv.
7 Gott yfirlit um hina hefðbundnu femínísku gagnrýni á klám má finna hjá Amy
Richlin, „introduction“, bls. xiv–xxiii, og í Lindu Williams, Hard Core, bls. 9–33.
8 Amy Richlin hefur bent á eina mögulega undantekningu á þessu: Grísk-
rómversku staðalmyndina kinaidos/cinaedus, kvenlegan karlmann sem þráði að vera
undir í endaþarmsmökum. Sjá „Not before Homosexuality: The Materiality of the
Cinaedus and the Roman Law against Love between Men“, Journal of the History
of Sexuality 3/1993, bls. 523–573.
9 Michel Foucault, The History of Sexuality, Volume I: An Introduction, þýð. Robert
Hurley, London: Penguin Books, 1984, bls. 53–73; Michel Foucault, The Use of
Pleasure: The History of Sexuality Volume 2, þýð. Robert Hurley, London: Penguin
ÞRJú SKREF Í ÁTT Að TiLURð KLÁMSiNS