Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2016, Page 82

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2016, Page 82
81 Nokkur hugsanleg viðmiðunarár og -atburðir Fyrir þau sem aðhyllast þá söguskoðun að sagan sé samansett af einstökum tímasetjanlegum atvikum er mögulegt að nefna nokkra atburði sem ýmist má líta á sem beinar eða óbeinar en þó nauðsynlegar forsendur fyrir því að við Íslendingar í fyllingu tímans urðum lúthersk. Tímasetning þeirra þjónar þá sem viðmiðunarár og nokkurs konar atrennur að svörum við spurningunni um hvenær við höfum orðið lúthersk. 1517 má líta á sem upphafsár að siðbótarstarfi Lúthers en í september sendi hann frá sér ritið Contra scolasticam theologicam sem hafði að geyma 97 greinar eða yrðingar um synd og náð. Þetta var mikilvæg atrenna að grein- unum 95 um aflátið sem hann negldi á dyr hallarkirkjunnar í Wittenberg að kvöldi dags 31. október, það er á aðfangadagskvöldi allra heilagra messu, þá um haustið.6 Þessi atburður er óbein en nauðsynleg forsenda þess að við urðum lúthersk. Án siðbótarstarfs Lúthers hefðu siðaskipti ekki orðið hér um 30 árum síðar á þeim grunni sem raun ber vitni. Þetta er þó óbein forsenda siðaskipta hér á þann hátt að kirkjugagnrýni Lúthers gat vel átt sér stað og hlotið umtalsverð áhrif, jafnvel leitt til kirkjuklofnings, án þess að áhrif hefði hérlendis. Á 16. öld var langt frá Wittenberg til Íslands. Þótt siðbótarstarfi Lúthers sé hér lýst sem einum tímasetjanlegum atburði ber ekki að líta svo á að um skyndiákvörðun hafi verið að ræða. Bæði áttu greinarnar 95 sér langan aðdraganda og ekki voru þær einar um að koma siðbótarþróuninni af stað. 1517 er heldur ekki það ár sem helstum straum- hvörfum er talið hafa valdið í þessu sambandi.7 6 Fyrstu sjö greinarnar fjölluðu um yfirbótina, greinar 8–29 fjölluðu um aflát til styttingar á dvöl látinna í hreinsunareldinum og fólu þær í sér endurskoðun á kenningunni um hreinsunareldinn, greinar 30–80 fjölluðu um möguleika lifandi fólks á að kaupa sér aflát og bundu þær hendur páfa við að selja aflát frá kirkju- legum refsingum þessa heims, greinar 81–95 gagnrýndu misnotkun kirkjunnar á aflátssölunni. Carsten Bach-Nielsen, „1500–1800“, Kirkens historie ii, Kaupmanna- höfn: Hans Reitzels forlag, 2012, bls. 17–381, hér bls. 39. Siðbótargreinar Lúthers hafa birst a.m.k. tvívegis í íslenskri þýðingu Jóhanns Hannessonar (1910–1976) prófessors. Sjá „Siðbótargreinar Lúthers sem festar voru upp á hurð hallarkirkj- unnar í Wittenberg 31. okt. 1517“, Morgunblaðið 31. október 1967, bls. 16 og 24 og „Siðbótargreinar Lúthers, sem festar voru upp á hurð hallarkirkjunnar í Wittenberg 31. október 1517“, Orðið 1/1973, bls. 3–7, 30. 7 Hér er litið svo á að siðbótarstarf Lúthers eigi sér a.m.k. tvenns konar rætur, pers- ónulegar og guðfræðisögulegar. Þær persónulegu koma m.a. fram í áfallareynslu Lúthers 1505 og Rómarferð hans 1511. Fyrra atvikið hafði djúptæk áhrif á til- finningalíf hans og líklega einnig guðsmynd. Hið síðara vakti hann til gagnrýni á kirkjuna. Siðbótina má þó jafnframt túlka guðfræðisögulega með tilvísun til þeirra HvENÆR URðUM við LúTHERSK?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.