Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2016, Qupperneq 116
115
síst í bernsku, en ætla mætti þegar litið er á ýmsar greiningar samtímans á
honum.16
Hér skiptir þó að sinni mestu að flestir þeirra sem fást við rannsóknir á
þeim sem eru með geðklofa virðast sammála um að það verði beinlínis rof
í skynjun þeirra á eigin sjálfi þegar hann sækir harðast á.
III
Þegar nútíminn kom til sögu, hljóp nokkur gróska í æviskrif. Hún hefur
verið skýrð á margvíslegan hátt svo að ekki sé talað um þann ofvöxt sem
hefur hlaupið í slík skrif vegna tækniþróunar síðustu áratuga. Pólski félags-
fræðingurinn Zygmunt Bauman lítur til dæmis svo á að menn hafi fengið
það viðfangsefni að búa sjálfa sig til þegar þeir hafi losnað undan þeirri trú
að það væri fyrirfram ákveðið hverjir þeir væru og hvert félagslegt hlutverk
þeirra skyldi vera. Í menningu sem orðið hafi æ einstaklingsvæddari, hafi
þeir upphafið tryllta leit að sjálfsmynd og hún hafi komið í stað samfélags
(e. community). Sjálf umræðan um sjálfsmyndir – sem nú er gjarna gert ráð
fyrir að séu margar og sífelldum breytingum háðar – hafi líka vaxið svo
mikið að tala megi um hana sem sérstakan iðnað.17 Sá iðnaður er auðvitað
rétt eins og útgefnar ævisögur rithöfunda, þáttur í neyslusamfélaginu.18
Og af því að neyslusamfélagið gerir svo lítið úr þeirri sjálfsveru sem kölluð
er neytandinn er eflaust við hæfi að byrja á að skoða hvernig Hin hálu þrep
blasa við honum þegar hann sér bókina fyrsta sinni sem tiltekinn valkost í
neyslu. Mynd af málverki prýðir framhlið bókarinnar.
Hana má jafnt túlka sem nöturlega mynd nútímamannsins og sem
sjálfsmynd Bjarna Bernharðs. Hvítt höfuð og hvít ur háls, dregin svörtum
línum, krefjast athygli á fleti lágstemmdra lita, rauðguls, okkurguls, guls
16 Á opinberri vefsíðu Stofnunar þjóðarheilsu í Bandaríkjunum birtist t.d. svofelld
lýsing á geðklofa árið 2003: „Skitsófrenía er krónískt, alvarlegt og hamlandi
heilamein“ (þýð. mín). Þessa skilgreiningu hafa John Read, Loren R. Moshar og
Richard P. Bentall gagnrýnt harkalega, sjá John Read, Loren R. Moshar og Richard
P. Bentall „Schizophrenia is not an illness“, Models of Madness: Psychological, Social
and Biological Approaches to Schizophrenia, New York: Routledge, bls. 3 (tilvitnun) –7.
Á ensku hljóðar tilvitnunin svo: „Schizophrenia is a chronic, severe and disabling
brain disease“.
17 Zygmunt Bauman, „identity in the globalising world“, Social Anthropology 2/2001,
bls. 121–129, hér einkum bls. 121, 122 og 128; Zygmunt Bauman, The Individuali-
zed Society, Cambridge, UK: Polity Press, 2001, bls. 144 og 151.
18 Um neyslusamfélagið hefur Bauman meðal annars skrifað í Consuming Life, Cam-
bridge, UK: Polity Press, 2007.
„ÓMSTRÍðUR TAKTUR KviKRA STRENGJA“