Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Page 28
S n o r r i Pá l l J ó n s s o n Ú l f h i l d a r s o n
28 TMM 2012 · 1
brúðkaupinu stóð, sýndum við heiminum bestu hliðar samfélags okkar.
Þremur mánuðum síðar sýndum við þær allra verstu.“2
Orð ráðherrans enduróma meginþorra umfjöllunarinnar um óeirð irn-
ar: Síendurteknar alhæfingar um hugsunarlaust ofbeldi og skemmdar-
verk, hömlulausa græðgi og handahófskennda glæpi – alhæfingar sem
rit höf und ur inn Darcus Howe mótmælti harkalega í viðtali við BBC-
sjónvarpsstöðina.3 Þungum og hægum rómi sagðist Howe ekki kalla
þetta óeirðir heldur „uppreisn fjöldans“ og þó deila megi um orðanna
fyllstu merkingu er rökfræði hans sú sama og þeirra sem fjallað hafa
með svipuðum hætti um arabíska vorið og norðlægari systur þess
báðum megin við Atlantshafið. Í þeim tilvikum er uppreisnin eignuð
fjöldanum á þeim forsendum að gjörðir þeirra sem berjast á götum úti
endurspegli skoðanir og vilja stærri massa. Hvernig á það við hér? Getur
verið að sömu forsendur eigi við um Lundúnaóeirðirnar?
Óeirðir sem frelsun, gripdeildir sem uppreisn …
Til viðbótar við vald fjallaði rithöfundurinn Laurie Penny, á öðru kvöldi
óeirðanna, um annað grunnstef óeirða – það er geðhreinsun. „Fólk
tekur þátt í óeirðum vegna þess að alla sína tíð hefur því verið sagt að
það sé einskis virði,“ skrifaði Penny og sagði uppþotin vera ávöxt þess
þegar hið niðurlægða fólk „uppgötvar að sameinað getur það gert allt –
bókstaflega hvað sem er“.4 Í krafti þessa alls sem hægt er að gera, verða
óeirðir að yfirtöku rýmis og algjörum umsnúningi hefðbundinnar
merkingar þess. Gata sem eina mínútuna var vettvangur fyrir vöru-
kaup þeirra sem búa yfir auði, hefur þá næstu verið hernumin og breytt
í vígvöll þar sem valdaskekkjur eru leiðréttar. Að þessu samanlögðu
ganga óeirðir fyrst og fremst út á frelsun – frelsun einstaklings eða
fjölda einstaklinga, í flestum tilfellum tímabundna en á sama tíma bæði
hvetjandi og fordæmisgefandi.
Gripdeildir bæta svo enn öðru merkingarlagi við óeirðirnar. Versl-
unargötur, stök hverfi og jafnvel heilu borgirnar verða þá fyrst að því
sem þessi sömu svæði eru alla jafna sögð vera: Vettvangur raunverulega
frjáls flæðis fjármagns sem hvorki pólitísk né efnahagsleg bönd halda.
Franski sitúasjónistinn Guy Debord fjallaði um gripdeildir í texta sem
upphaflega var dreift í Bandaríkjunum í kjölfar fjögurra daga átaka sem
áttu sér stað í Los Angeles í ágúst 1965:
Gripdeildir eru eðlileg viðbrögð við óeðlilegu og ómannlegu samfélagi vöru-
gnægðar. Þær grafa samstundis undan varningnum sem slíkum og afhjúpa