Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Side 34

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Side 34
S n o r r i Pá l l J ó n s s o n Ú l f h i l d a r s o n 34 TMM 2012 · 1 Lundúnaaugans, sem eiga að höfða til þeirra sem hafa „ekkert að gera og allan daginn til að gera það“24 – og óeirðirnar hafi því verið spenn- andi atburður, dagar ólíkir öllum öðrum.25 Það passar við lýsingar blaðamannsins Pauls Lewis, eins þeirra sem fjallað hefur hvað mest um óeirðirnar, sem segir andrúmsloftið síst af öllu hafa verið óhugnanlegt, heldur þvert á móti litað ánægjubrosum og spenningi. Burt með mýsnar! Frá fyrsta degi óeirðanna sögðust blaðamenn Guardian ætla að „lesa óeirðirnar“ og eftir viku hafði lesturinn fært þeim þá niðurstöðu að ungur aldur, fátækt og atvinnuleysi mynduðu hið sanna andlit átakanna.26 Hið sama var uppi á teningnum nokkrum mánuðum síðar, þegar kunngjörð var niðurstaða rannsóknar sem blaðið framkvæmdi ásamt London School of Economics og byggir á viðtölum við 270 þátt- takendur í óeirðunum. Samkvæmt rannsókninni liggja rætur upp- þotanna annars vegar í djúpri andúð á lögreglunni, sem til er komin vegna rótgróinna ofsókna lögreglunnar á hendur ungmennum af lægri stéttum og innflytjendaættum – hins vegar í algjöru vonleysi og skorti á tækifærum.27 Þó að niðurstaðan sé rökrétt og rannsóknin vegi upp á móti haturs- áróðri yfirvalda – sem endurómaður er af bróðurparti fjölmiðla – getur krafan um akademíska úttekt á óeirðum og ástæðum þeirra haft þá hættu í för með sér að sjálft fólkið sem tók þátt sé jaðarsett og smættað niður í viðföng. Ósjaldan hefur því verið haldið fram að „þetta fólk“ geti ekki útskýrt sig sjálft, það geti ekki komið orðum að eigin hugmyndum og sett þær fram. Þetta viðhorf kristallast hvergi betur en í umfjöllun tímaritsins TIME á uppreisnum ársins sem leið. Þar er „mótmæland- anum“ í sínu hnattrænasta veldi veittur titillinn „maður ársins“ en á Lundúnaóeirðirnar er einungis minnst á þann veg að þó að þeir sem tóku þátt hafi „eðlilega ekki hlotið mikla samúð“ hafi rannsóknin ofan- greinda leitt í ljós að þeir hafi „líka verið mótmælendur“28. Eitt hættumerkjanna kemur í ljós ef horft er rangsælis á ferilinn frá óeirðunum til dagsins í dag og staðnæmst við leiðara Guardian meðan á óeirðunum stóð. Þar segir að þó að ljóst sé að framkoma lögreglunnar leiki stórt hlutverk í kveikju uppþotanna, myndi rannsókn aldrei leiða til sömu niðurstöðu og Scarman-skýrslan sem gerð var eftir Brixton- óeirðirnar þremur áratugum áður. Scarman nokkur lávarður fékk þá það verkefni að rannsaka orsakir óeirðanna og komst að þeirri einföldu niðurstöðu að ekki hefði verið lagt á ráðin um uppþotin heldur hafi þau
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.