Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Síða 75

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Síða 75
L á r v i ð a r s k á l d TMM 2012 · 1 75 Matthías tók undir þessi orð í klausu neðanmáls og lofaði að reyna að koma á fót slíkum sjóði en ekki fer frekari sögum af honum. Það var því enn fullkomið svigrúm til að minnast Jónasar í stórum stíl þegar leið að aldarafmæli hans árið 1907. Hugmyndin um gerð líkneskisins af Jónasi Hallgrímssyni var fyrst viðruð í blaðagrein af Vilhjálmi Jónssyni árið 1897 og var þar lagt til að Stúdentafélögin í Reykjavík og Kaupmannahöfn stæðu saman að samskotum í tengslum við væntanlegt aldarafmæli skáldsins áratug síðar.48 Söfnunin hófst fyrir alvöru 1899 en 1905, þegar Einar Jónsson myndhöggvari fór að vinna að gerð styttunnar, vantaði enn fjórðung upphæðarinnar sem rætt hafði verið um.49 Á næstu misserum var settur aukinn kraftur í verkefnið og var meðal annars efnt til skemmtana víða um land til að safna fé í minnisvarðasjóðinn.50 Halldór Jónsson, gjald- keri söfnunarinnar, gerði grein fyrir árangri þessa starfs að leiðarlokum. Þar sagðist hann hafa vænst þess, eins og vafalaust flestir, að peningar mundu streyma inn til minnis- varða yfir „óskabarn Íslands“, og þar sem ekki var gert ráð fyrir meiri fjárhæð en um 6000 kr. — ekki einu sinni 10 a. á mann í landinu — mundi upphæð þessi koma inn mjög bráðlega. En reynslan hefur nú orðið sú, að á umliðnum 10 árum hafa enn ekki komið inn meira en um 5500 kr., svo að enn vantar um 500 kr. til þess að auðið sje að segja, að þjóðin reisi þennan minnisvarða.51 Söfnunin fyrir líkneskinu af Jónasi varð samt mun árangursríkari en söfnunin fyrir brjóstlíkneskinu af Bjarna.52 Munurinn lá að nokkru leyti í lengri undirbúningstíma og metnaðarfyllri áformum Jónasaraðdáenda en það hefur örugglega einnig skipt máli að Íslendingar stóðu í öðrum sporum í efnahagslegu tilliti og jafnframt í sjálfstæðisbaráttu sinni en tuttugu árum fyrr. Þá er líklegt að Jónas hafi, þegar þarna var komið sögu, einfaldlega átt betri hljómgrunn meðal almennings en Bjarni, ekki bara sem skáld heldur líka sem persóna.53 Hann hafði það með sér að verka virkur þátttakandi í þjóðfrelsisbaráttunni og deyja í blóma lífs- ins án þess að komast í tryggt embætti eða eignast stúlkuna sem hann elskaði. Hann passaði að flestu leyti betur en Bjarni í hlutverk þjóð- skáldsins, eins og það hafði verið skilgreint í Evrópu á undanförnum áratugum.54 Afhjúpun styttunnar af honum við Lækjargötu í Reykjavík 16. nóvember 1907 varð í raun og veru þjóðernispólitískur viðburður sem dró til sín múg og margmenni, þeirra á meðal félaga úr Stúdenta- félaginu, Ungmennafélaginu og Skólapiltafélaginu. Þeir gengu fylktu liði til og frá samkomunni og sungu lög við ljóð skáldsins. Í Lögréttu var dagskránni lýst með þessum hætti:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.