Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Page 101

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Page 101
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2012 · 1 101 og bréfburðarmaður vitaskuld sendi- boði orðanna. Það er því viðeigandi að spyrða þá saman hann og strákinn því strákurinn er ómeðvitað og af innri þörf einnig sendiboði orða. Eins og vikið var að hér í upphafi stjórna orðin lífi hans og margra annarra sögupersóna nánast með bókstaflegum hætti. Í síðustu bók- inni, Hjarta mannsins, skrifar strákur- inn til að mynda Andreu, vinkonu þeirra Bárðar bréf sem verður til þess að hún fer frá Pétri formanni. Strákurinn áttar sig seint um síðir á eigin ábyrgð í þessu sambandi því hann hafði alls ekki hugsað út í hvað gæti orðið um hana í kjölfarið, einungis að hún gæti kannski fundið „lífið aftur“ (HE bls. 89). Einnig skrifar hann bónorðsbréf til Rakelar, ungrar verkakonu á eyrinni, og þarf sjálfur að kljást við afleiðingar orð- gnóttar sinnar sem hræðir stúlkuna svo mjög að hún misskilur bréfið og tapar annars óbugandi gleði sinni þar til strákurinn hefur leyst málið og hún þekkist bónorðið. Bréf móður stráksins til hans sjálfs sem höfundur dregur fram af og til í frásögninni, fá aukið vægi eftir því sem strákurinn les þau meira, sérstaklega í Harmi englanna. Einnig í þessum bréf- um er máttur orðanna margþættur og mismunandi eftir því hver les og hve- nær. Hann skilur loks að móðir hans sá fyrir endalok sín og skrifaði honum með það í huga. „Þetta voru þá bréf til fram- tíðarinnar, til hans í þeirri framtíð sem hún missir af, hún og Lilja. Áköf orð, en mettuð sárum trega, bara svo fínlegum að hann finnur hann varla. Þessi orð eru bátar sem ferja líf hennar, Lilju og föður hans, í átt frá gleymsku og algerum dauða“ (HE bls. 78). Snjórinn, harmur englanna, er hvítur – en strákurinn er farinn að átta sig á margbreytileika tilverunnar; veit sem er að „sum orð hafa fleiri liti en regnbog- inn“ (HE bls. 54). Hann skilur líka að „orðin eru það eina sem tíminn virðist ekki geta stigið léttilega yfir“ (HE bls. 82). Þau þola eyðileggingarmátt tímans. Í Harmi englanna setur strákurinn traust sitt á þessa vitneskju og hegðar sér í samræmi við það. Jóni Kalman tekst einstaklega vel upp við að afhjúpa innra líf þessarar nafnlausu sögupers- ónu sinnar í gegnum eilífar hugleiðingar hans um orð; að tengja hana sálarlífi þjóðarinnar og sögu. Honum tekst að halda myndmálinu um orðin lifandi, orðin eru í senn bjargvættur, (í þeim skilningi að þau víkka veröldina svo um munar) og ógn (sem getur drepið mann ef maður gleymir sér um of líkt og Bárður, eða verður úti við að koma þeim til skila eins og póstarnir tveir, fyrir- rennarar Jens). Orðin eru aukinheldur undirstaða skáldskaparins sem þessi trí- lógía fjallar öðrum þræði um, því „[s] káldskapurinn er heimurinn á bak við heiminn“ (HE bls. 123) eins og strákur- inn útskýrir fyrir faktorsdótturinni hrokafullu sem gerir lítið úr lærdómi og bókaást Gísla skólastjóra í Plássinu. Afstaða verksins gagnvart orðunum og skáldskapnum er því hin sama og stráksins, sem finnur sig knúinn til að vera orðunum trúr og verja skáldskap- inn. Því í honum felst mótvægið við raunveruleikann, vonin í brjósti mann- anna og sú hugljómun sem dregur þá áfram. Í kotunum sem þeir Jens leita skjóls í á hrakningum sínum sér strákurinn aðstæður sem minna hann á foreldra hans, hörmuleg örlög þeirra og eigin uppvöxt. Hann tekur að sér að miðla bókum, koma orðum til skila, og þeir Jens skilja eftir pappír svo börnin geti notið þess ímyndaða heims er felst í teikningum og stöfum á blaði. Bókaást þjóðarinnar er þannig miðlæg í þessu öðru bindi trílógíunnar, bækurnar og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.