Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 19

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 19
H v e r j u r e i d d u s t g o ð i n ? TMM 2012 · 2 19 galdra nota ýmis hugtök (á borð við magic, witchcraft, sorcery og shamanism) og það ekki af tilviljun einni saman, eins og ég tel nú rétt að víkja nánar að. * Ég hef hér að framan nokkrum sinnum notað orðið „yfirnáttúra“ en með talsverðri tregðu því að þegar það hugtak er notað er óhjákvæmilegt að taka sér stöðu í náttúrunni og horfa upp yfir hana eða handan hennar og það kallar á skýra hugmynd um náttúru og hvað sé eðlilegur hluti hennar en hvað ekki; orðið hefur verið gagnrýnt af þeim sem hafa viljað nálgast hugar­ far þess sem trúir á yfirnáttúruleg fyrirbæri; enski fræðimaðurinn C.S. Lewis benti þannig á sínum tíma á það að fyrir þann sem tryði á álfa og tröll (eða einhyrninga og dreka) væru þessi fyrirbæri ekki yfirnáttúruleg heldur jafn mikill hluti af náttúrunni og aðrar lífverur, kettir og hundar þess vegna, rétt eins ókapi er hluti af okkar fánu (en það undradýr þekktu Evrópumenn ekki fyrr en á 20. öld, þannig að ókapinn var sannarlega goðsögn áður en hann reyndist vera til). En það er erfitt að finna góð orð. „Yfirskilvitlegur“ er skárra orð þar sem þá er numið staðar í skynfærum mannsins og þar með reynslu hans. „Dulrænn“ kann að hljóma kjánalega eftir nokkra áratugi af skyggnilýsingum en nær þó enn betur utan um það eðli slíkra fyrirbæra að allsendis er óvíst að þau beri að skýra; þegar þetta orð er notað er öruggri þekkingu ekki lofað. Allar miðaldaheimildir virðast á einu máli um að drjúgur hluti dulrænna fyrirbæra eigi sér rót í göldrum og kukli, raunar svo drjúgur að erfitt er að benda á neitt yfirnáttúrulegt sem a.m.k. sumir miðaldamenn töldu ekki eiga sér rót í göldrum. Þannig er engin leið að skilja að galdrasögu og draugasögu þegar komið er fram á miðaldir. Þegar kemur að helstu samskiptum og samskiptaleiðum við hið yfirnáttúrulega, yfirskilvitlega og dulræna er ekki minni vandi á höndum að velja hugtökin þar sem þau hneigjast öll til að vera neikvæð og fræðimenn vilja helst ekki vera neikvæðir, (það er fremur í þeirra náttúru og uppeldi að leita hlutleysis). Það á sannarlega við um öll alþjóða­ orðin um fyrirbærið sem ég nefndi rétt áðan en hér á eftir verður sjónum í staðinn einkum beint að hinum norræna orðaforða. Þegar rætt er um þá sem koma böndum á hið yfirskilvitlega eru helstu fornnorrænu hugtökin fjölkynngi, forneskja, galdrar og trollskapur sem öll hafa áhugaverða merkingarauka. Hér áður var vikið að Eyrbyggja sögu og þar eru engin dæmi um fjölkynngi (hins vegar sést orðið margkunnig) og dæmin um galdra eru varasöm (annars vegar auknefnið galdrakinn en hins vegar hluti af kenningu, vopna galdr). Á hinn bóginn koma hin tvö orðin fyrir í áhugaverðu samhengi í þessari allsérstæðu Íslendingasögu sem varpar nokkru ljósi á það hvernig hægt er að vinna með hugtökin. Það vekur athygli að bæði hugtökin tvö (forneskja og trollskapur) koma fyrir í tengslum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.