Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 33
„ M a ð u r þa r f e k k i a ð s k r i fa f y r i r s k ú f f u n a“ TMM 2012 · 2 33 hjá [honum], átti staðgott skjól í hjónarúmi og uppþvottavél …“16 Dáti leggst í eymd og volæði, eyðir dögunum í sérrídrykkju og tarotspil með móður sinni en þegar hún greinist með krabbamein og fær þann dóm að hún eigi einungis þrjá til sex mánuði ólifaða tekur hann á sig rögg: [R]aunveruleikinn hrifsaði mig til sín. Ég gekk um íbúðina og virti hana fyrir mér í transkenndri vímu þess sem starir framan í vissuna um hið hverfula. Hver krókur og kimi var eins og göng inn í fortíðina. Freud í rykformi. Ævisaga úr mólekúlum. Líf mitt liðaðist hjá í hólógrami fortíðarbrota og án minnsta fyrirvara var ég gripinn óstjórnlegum létti – þetta væri ekki endir alls, heldur nýtt upphaf. Sjálfur tíminn, þessi ósamstæða kvoða af sviplausum dögum og sjálfsvorkunn varð að heildstæðri óhagganlegri mynd sem stóð kristalskír fyrir augum mér. Héðan í frá yrði sérhver dagur listaverk þar sem pensilstrokurnar tækju ekki mið af öðru en þessu: Að gera Mömmu hamingjusama, síðustu dagana sem hún lifði.17 Dáti leitar að lækningu handa móður sinni og finnur að lokum heimasíðu Libertas, meðferðar­ og líknarstofnunar á herragarðinum Láglandi í Hol­ landi. Hann pantar umsvifalaust gistingu fyrir þau á lúxushóteli í Amsterdam og síðan leggja þau í hann. Líferni mæðginanna eitt og sér virðist til þess fallið að leggja fullfrískt fólk í gröfina en milli þess sem móðirin heimsækir Lágland mála þau bæinn rauðan: „Það eru mjög ýktar lýsingar inn á milli af þeirra svalli, það koma sér­ staklega kaflar þar sem Dáti er mjög djúpt sokkinn í sitt volæði. Mér fannst þetta vera leið til að draga mennskuna og lægðina í honum fram og sorgina við það að missa fótanna við þessar öfgafullu aðstæður þar sem hann þarf virkilega að standa sig. Þetta er í raun leið til að tjá að áskorunin er honum ofviða og það er í raun ekkert hægt að enda lífið eftir einhverri uppskrift eða ganga frá öllu samkvæmt einhverju fyrirfram skrifuðu handriti, aðstæðurnar eru alltaf óvæntar og niðurstaðan aldrei sú sem maður býst við og þetta bugar hann.“ Móðir Dáta, Eva Briem, er sterkari aðilinn í sambandi þeirra. Hún hefur alltaf svör á reiðum höndum og þótt þau svör séu oftar en ekki hreinræktuð vitleysa þá er hún svo viss í sinni sök að Dáta fallast hendur. En þó að Eva hafi sína galla þá býr hún yfir aðdráttarafli og persónutöfrum. Maríanna Clara Lúthersdóttir skrifaði t.d. á vefinn Druslubækur og doðrantar: „Eva er yfirgengileg og í raun óalandi og óferjandi en hún er svo skemmtileg og sönn að henni fyrirgefst allt […] mikið sem mér þykir leiðinlegt að geta ekki fengið mér í glas með henni.“18 Í gegnum Evu fá lesendur líka innsýn inn í hugarheim ákveðinnar kynslóðar sem segja má að standi í skugga þeirrar sem kom á undan, aldamótakynslóðarinnar, og þeirrar sem fylgdi í kjölfarið, 68­kynslóðarinnar: „Í Evu Briem blundar einhver gamalgróinn líberalismi, einhver hluti af frumviðjum hippahreyfingarinnar sem á sér samt föst ítök í eldri gildum borgaramenningar 20. aldarinnar. Hún fæðist áður en frelsi og líberalismi, eins og sonur hennar hefur alist upp við, verða norm. Henni er mjög
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.