Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 47
S a m t a l y f i r t v ö þ ú s u n d á r
TMM 2012 · 2 47
Milli fjallstinda í vestri sést í algeiminn, þar glitra þrjár af stjörnum Svansmerkis
ins.
(Sjón, 2003a, bls. 82)
Vart er hægt að túlka þetta öðruvísi en sem katasterisma Öbbu, hún hafi
verið hafin upp og tindri nú sem himintungl, komin á sinn stað sem svanur,
en ekki litli ljóti andarunginn sem ætíð var utangarðs á meðal mannanna.
Verkið stendur með hinum veikbyggða og smáa, hann er hafinn upp. Þessi
vísun í hvort tveggja Ummyndanir Óvíðs og ævintýri H.C. Andersens með
því að nefna Svansmerkið fær frekari stoð í lokakafla Skugga-Baldurs, en
þar kemur í ljós að Abba hafði mikið dálæti á H.C. Andersen og þótti afar
merkilegt að eiga fjöður af dönskum álftarunga. Hún setti hana í fuglabókina
sína á jólanótt en Abba safnaði fuglsfjöðrum af ástríðu og nákvæmni og
hafði mikið dálæti á fuglum, sem vakti furðu hjá Friðriki:
Hann hafði oft velt því fyrir sér hvaðan Abba hafði allan sinn fróðleik um fugla,
en hjá henni fengust engin svör, og þegar hann reyndi að kenna henni meira í nátt
úrufræði, þakkaði hún pent fyrir sig; sagðist hafa áhuga á fuglum.
(Sjón, 2003a, bls. 80)
Þessi áhugi Öbbu á fuglum fær aukna merkingu þegar horft er til þess
hvernig fuglar birtast í Ummyndunum. Þar eru fuglar af allskyns stærðum
og gerðum býsna áberandi og þar má finna þónokkuð margar umbreytingar
í fugla. Hægt er að sjá ákveðin einkenni á þeim ummyndunum og þau vísa
öll í átt að frelsi og lausn. Í fyrsta lagi verða breytingar í fugla þegar engrar
annarrar undankomu er auðið fyrir persónuna eftir miklar hremmingar. Eitt
dæmi af mörgum er þegar Keneifur flýgur upp úr prísund sinni ummynd
aður í fagran fugl eftir að kentárarnir höfðu hlaðið á hann trjábolum til að
kæfa hann. Annað dæmi er af kóngsdótturinni Skyllu sem umbreytist í fugl
á flótta undan föður sínum, og svo er það tróverski kappinn Kýknus sem
bjargast með umbreytingu í svan í þann mund sem Akkilles er að leggja
hann að velli í hörðum bardaga. Í öðru lagi verða ummyndanir í fugla
til huggunar og sárabóta, líkt og hjá elskendunum Keyx og Alkýónu sem
ummynduðust bæði í sjófugla fyrir miskunn guðanna, og hinum mædda
Esakusi sem yfirkomnum af sorg og löngun til að deyja er breytt í skrofu af
gyðjunni Teþys. Mörg fleiri dæmi mætti nefna úr Ummyndunum þar sem
fugl birtist sem himneskt tákn um frelsi og lausn. Fuglinn er vængjaður eins
og andinn, flýgur um loftin hafinn yfir veröld mannanna, nær guðunum en
þeim. Óvíð lætur Pýþagóras undirstrika þetta með því að draga upp mynd
af sálum með vængi eins og fuglarnir: „… við erum hluti af heiminum,
ekki líkamir eingöngu heldur líka vængjaðar sálir, og getum tekið okkur
bólfestu í villidýrum og falið okkur í líkömum búpenings“ (Ovidius, 2009,
bls. 419). Dálæti Öbbu á fuglum felur þannig í sér þrá eftir lausn, sem og ást
á hinu góða og fagra í sálum fólks. Blóðugasta saga Ummyndana, hryllings