Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 20

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 20
H j a l t i H u g a s o n 20 TMM 2015 · 3 Þrátt fyrir að hinum guðfræðilega mun á prestum og öðrum væri þannig hafnað og um leið hlutverki presta sem meðalgangara Guðs og manna héldu lútherskir prestar margháttaðri sérstöðu. Til þeirra voru gerðar sérstakar kröfur um menntun, þeir gegndu áfram sérstöku hlutverki í kirkjunni og nutu sérstakra réttinda í söfnuðinum sem einkum komu fram í fjölbreyttum tekjustofnum þeirra sem sóknarbörnin urðu að standa skil á. Þá önnuðust prestar margháttað eftirlit meðal safnaðarins eins og best kom fram í húsvitjun þeirra. Þeir voru því áfram yfirvald þótt það hlutverk tengdist þegar á leið fremur stöðu þeirra gagnvart ríkisvaldinu en Guði. Hér á landi kann staða margra presta þó að hafa verið tvíbent þar sem þeir greindu sig menntunarlega ekki á róttækan máta frá söfnuðinum en fram til 1847 var aðeins krafist að þeir hefðu lokið latínuskólaprófi. Tekjur þeirra voru og misjafnar og deildu margir prestar kjörum með bændum.12 Sumir þeirra bjuggu líka við fátækt.13 Félagslega séð voru prestar þó lengi tengiliðir milli hinnar „stóru menningar“, sem miðlað var með menntun og einkenndi æðri stéttir Evrópu, og „litlu menningarinnar“ sem gekk frá einni kynslóð alþýðufólks til annarrar og var miðlað með heimilisuppeldi.14 Margir prestar litu því einkum á sig sem alþýðufræðara og urðu frammámenn í fræðslu- málum þjóðarinnar þegar skólakerfi tók að þróast hér.15 Þá gegndu prestar fjölmörgum félagslegum hlutverkum sem eðlilegt var að þeir öxluðu þar sem þeir voru oft einu menntuðu menn héraðs síns. Með aukinni almennri menntun og sérhæfingu á 20. öld glötuðu prestar mörgum af þessum hlutverkum og urðu prestar í fullu starfi í stað þess að vera jafnframt bændur. Einnig breyttist prestsímynd almennings og sjálfs- mynd presta. Nú er vafamál hvernig líta beri á prestinn: Er hann embættis- maður, sérfræðingur eða fagmaður? Ber að flokka hann sem yfirvald eða setja hann í hóp með kennurum? Er hann meðferðaraðili, prédikari eða helgitæknir? Ber honum að hafa skoðanir á þjóðmálum eða þegja um þau?16 Þannig mætti lengi spyrja en í nútímasamfélagi sem einkennist af verald- legri menningu í stað trúarmenningar áður virðist presturinn vera í kreppu og samfélagið í vafa um hvað það eigi að gera við hann milli hátíða ef ekkert bjátar á. Hér hefur verið leitast við að sýna að prestsímyndin er breytileg og mótast af mismunandi guðfræði, sem og af félags- og menningarlegum aðstæðum Ætíð vegur þó þungt sú staðreynd að þeir eru í einhverri merkingu „atvinnumenn“ á sviði trúarinnar. Af þeim sökum er áhugavert að nota prestinn og mynd hvers tíma af honum sem eins konar loftvog á stöðu hins heilaga í samfélaginu. Hér verður leitast við að gaumgæfa hvort staðhæfingin sem fram kemur í titli þessarar greinar stenst – en þar segir að ekki sé pláss fyrir hið heilaga í samtímanum – eða hvort raunin sé hið gagnstæða. Eins og fram er komið er litið svo á að skoða megi prestinn sem sérstakan persónugerving hins heilaga, trúarinnar og kirkjunnar. Hér verður því spurt hvaða ímynd af prestinum og hlutverki hans sé miðlað í fjórum íslenskum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.