Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 73

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 73
A n a M a r í a S h u a . M ö r g a n d l i t a r g e n t í n s k r a r s k á l d k o n u TMM 2015 · 3 73 Grasafræði óreiðunnar hefst á stuttum kafla sem nefnist „Inngangur að óreiðunni“ og slær tón bókarinnar. Hann er sagður skrifaður af Hermesi Linneusi nokkrum sem titlar sig flokkunarfræðing, og er þar greinilega vísað til hins goðsögulega sendiboða Grikkja og hins sænska föður nátt- úrufræðilegra flokkunarkerfa. Í innganginum er meðal annars tæpt á því hvernig orðið ruglar okkur í ríminu, handan þess ríkir glundroðinn, óreiðan eða kaosið. Orðin styðjast við alhæfingar og einfaldanir, og halda hinni upp- runalegu óreiðu í skefjum. Á Shua má skilja að of stíf flokkun sé, þegar alls er gætt, óheilbrigð. Bókin skiptist í tólf kafla. Titlar þeirra gefa góða hugmynd um efni bókarinnar: „Sérkennileg dæmi“ (Ejemplos raros), „Um tímann“ (Acerca del tiempo), „Af guðum og djöflum“ (De dioses y demonios), „Sjúk dóms grein- ingar“ (Diagnósticos), „Tilbrigði“ (Variaciones), „Arabískar nætur“ (Noches árabes), „Draumar“ (Sueños), „Um bókmenntir“ (Literarias), „Ófreskjur“ (Monstruos), „Handverk töfranna“ (Artesanía de la magia) og að lokum „Óreiða“ (Caos). Í Grasafræði óreiðunnar birtist löngun til að hafa reglu á hlutunum (og flokka) en í sömu andrá að vera óháð flokkunum; löngun til að viðhalda skipu lags leysinu og óreiðunni – og þar með ákveðnu frelsi, jafnvel mætti segja ímyndunaraflinu og sköpunargáfunni. Má greina vantrú á hinn svo- nefnda raunveruleika og vissuna um alla skapaða hluti sem einkennir vestræn nútímasamfélög, þá er ekki síst átt við vísindin og vísindalega heimsmynd. Allt er þetta sett fram af samspili glettni og kaldhæðni sem einkennir höf- undinn svo mjög, og við má bæta: absúrd tilfinningu fyrir lífinu. Glettni, tvíræðni og kaldhæðni er eitt höfuðeinkenni örsagna, að minnsta kosti þeirra sem hafa verið skrifaðar af höfundum frá Rómönsku Ameríku, auk orðaleikja og textatengsla. Þessi einkenni liggja sem grunntónn í höf- undarverki Shua, sérstaklega örsögum hennar. Það leynir sér ekki að Shua horfir á heiminn með augum kímni sem á það til að taka á sig hin ólíklegustu stærðarhlutföll. Haft er eftir henni að vissulega sé hlutskipti mannsins átakanlegt, en það er ekki síður hlægilegt; að í raun sé heimurinn hreint út sagt fáránlegur.2 Þessi sýn leiðir þó ekki til vonleysis, heldur glittir ævinlega í vonina gegnum orðið og frelsandi mátt þess. Tími drauganna (Temporada de fantasmas) kom út árið 2004 og inni heldur 99 sögur. Í þeirri bók eru færri textar en í fyrri söfnum Shua. Bókinni er skipt í níu hluta. Eins og sum heitin bera með sér er efniviðurinn kunnug legur: „Leyndardómar skáldskaparins“, (Misterios de la ficción), „Úr raunveru legu lífi“ (De la vida real), „Guðlegir duttlungar“ (Capricho divino), „Aðrar þjóðir, aðrar goðsagnir“ (Otros pueblos, otros mitos), „Að sofa, að dreyma“ (Dormir, soñar) og „Yfirnáttúruleg ringulreið hlutanna“ (El desorden sobrenatural de las cosas). Efnið er Shua mjög hugleikið og endurtekur sig í verkum hennar, en tæplega er þó hægt að segja að nálgunin endurtaki sig. Höfundur veltir sífellt upp nýjum flötum og sjónarhornum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.