Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Blaðsíða 110
G u ð m u n d u r S . B r y n j ó l f s s o n
110 TMM 2015 · 3
um Stalíngrad og eitthvað sem eitt sinn var öðlast nú fyllingu. Og fyllingin er
svo fullkomin að henni hverfa meira að segja allar þrautir, lausnarinn hefur
sest að í sál hennar, „hún hefur ekki heyrt þennan hlátur til fulls fyrr en nú“.
Lestur Thors á konunni í þögninni er í fullu samræmi við það sem Sigurður
Pálsson heldur fram um höfundarverk skáldsins:
Allt verk Thors er vitnisburður um lestur mannsins á heiminum, lestur sem er óra-
fjarri dogma og credo, trúarlegu, pólitísku, bókmenntalegu, vísindalegu dogma;
lestur á hinu óendanlega smáa í hinu stóra samhengi maður-heimur, lestur laus við
kreddur og gengur gegn deildarskiptingu heimsins í austur- og vesturkirkjuna og
allar aðrar deildarskiptingar.30
Tvíhyggjan fellur fullkomlega undir það að vera hvorki dogma né credo –
þvert á móti er hún á jaðrinum – en hún þiggur eitt og annað frá bæði kreddu
og játningu, til dæmis hugmyndina um Jesú Krist sem bæði mann og Guð.
Eins geta bæði kreddan og játningin fundið í tvíhyggjunni eigindir sem
gera það að verkum að þær verða bærilegri og fleiri geta gengist undir þær.
Þar má nefna sakramentisskilning sem gerir út á leyndardóminn og órætt
eðli efnanna, sem í sjálfu sér er kredda, og sjá má að játningin þiggur af
tvíhyggjunni þann möguleika að Kristur sé bæði maður og Guð – atriði
sem lengi var deilt um og hefur í flestum játningum á sér yfirbragð mála-
miðlunar.31
Þrátt fyrir þetta innlegg Sigurðar – og kannski einmitt þess vegna – tekur
hann það sérstaklega fram að hann telji ekki að Thor sé trúmaður en bætir
því svo við að það skipti ekki höfuðmáli.32
Konan í stólnum hefur lifað tímana tvenna, þá tíma sem ægðu Benjamin
og líka óttann við yfirvofandi helsprengju. En konan er þögul á þessari stund
fyllingarinnar og þannig talar hún paradísarmálið á nýjan leik, hina djúpu
þögn (the deep stillness), sem innsiglar þá staðreynd að hún hefur meðtekið
ákall síðasta guðsins og hvort hann er nær eða fjær fáum við ekki vitað – það
eina sem við vitum er að konan var hér í heimi og þagði með Thor undir
myndum Rembrandts. Þannig á þessi kona söguna alveg til jafns við alla
sigurvegara, í fyllingunni er eignarrétturinn afnuminn og uppljómunin
skýrir að endingu tilgang þess sem var – og þar er hún komin, „krýning
reynsl unnar“.
Seta þessarar gömlu konu í texta Thors er ekki einangrað tilvik, hún leiðir
að niðurlagi textans: „Þú stendur þarna, enginn tími er til, það er ekkert til
nema þessi mynd sem þú horfir á, og allur heimurinn kringum. Það er ekkert
sem ekki er til.“
Og nú vitum við ekki lengur hvaða mynd Thor er að tala um. Það getur
verið einhver af Rembrandt-myndunum sem hanga uppi í Vetrarhöllinni en
það getur líka verið myndin sem hann hefur sjálfur sett á svið: myndirnar í
salnum, konan í stólnum, hann sjálfur og þögnin. Hann gengur með öðrum
orðum inn í orðræðuna sem aldrei verður, eins og hann vilji sætta þær and-