Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 140

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 140
D ó m a r u m b æ k u r 140 TMM 2015 · 3 orðum er samfélagsádeila engu að síður einn sterkasti strengur bókarinnar. Náttúruvernd er þar í stóru hlutverki og þótt mannskilningur og samfélagshug- myndir Öræfa beri vott um íhaldssemi er bókin um leið ákaflega róttæk í ský- lausri náttúruverndarkröfu sinni. Viða- mikil umfjöllun um ræktun lands er til marks um það afstæði sem setur svip sinn á hugmyndaheim sögunnar. Skýr (en óhefðbundin) afstaða er tekin gegn manngerðri náttúru þar sem maðurinn reynir að þvinga undir sig náttúruna undir merkjum „ræktar“: … þessir ferköntuðu skógar sanna það að tilgangur þeirra er að vinna gegn nátt- úrunni og sjálfum sér, skógrækt er gróð- ureyðing, og verst er að líkja eftir nátt- úrunni því það er ekki hægt, skógrækt er í raun ekkert annað en sjálfsafneitun og sjálfstortíming, eða stendur fólk í þeirri trú að það sé að endurheimta skóginn sem var hér við landnám, með öspum og sitkagreni og þar með að endurheimta sjálft sig? (317–318). Örnefnafræðingurinn Bernharður Fing- urbjörg sogast inn í öræfin og mestöll ævi hans er einn samfelldur undirbún- ingur fyrir förina þangað. Sóknin eftir hinu villta og upprunalega er óslökkv- andi og gildir einu þótt landbúnaðar- guðinn Freyr gangi inn í hlutverk varn- aðarengilsins og elti hann hvert sem hann fer. Ádeila sögunnar felst líka í hugleiðingum um eðli ferðalaga í nútímanum, hún tengist hugsjóninni um hið óspillta og þar er Bernharður sjálfur í brennidepli. Honum er umhug- að um að skilgreina sjálfan sig burt frá ímyndinni um hinn illa upplýsta túrista sem hrifsar hraðsoðna fróðleiksmola úr handbók eða snjallsíma jafnóðum og hann röltir um áfangastaði sína. Sjálfur ákveður hann að leggja ekki inn á Mávabyggðirnar fyrr en hann er búinn að lesa allar þær bækur sem hann finnur um svæðið; líkt og Don Kíkóti er hann handhafi gamalla hugsjóna í gjörbreytt- um nútíma. Auk Bernharðs stíga ýmsar litríkar persónur fram á sviðið í Öræfum, fólk sem á sviðið lengur eða skemur og fyrir vikið verður öll skipting í aðal- og auka- persónur býsna ómarkviss. Sagan hefst á löngum og upptendruðum pistli dýra- læknisins dr. Lassa sem fær það hlutverk að hlúa að Bernharði þegar hann kemur niður af jöklinum. Auk þess að vera kynning á högum Bernharðs er þessi kafli lýsing á algjörum vatnaskilum í lífi dr. Lassa sjálfrar, eins konar hugljómun þar sem ferlar persónanna tveggja sker- ast. Persónulýsingarnar í Öræfum tvinnast gjarnan saman með hætti sem ekki er alltaf auðvelt að henda reiður á. Þetta er ítrekað í lok hvers kafla þar sem varpað er ljósi á hin mörgu frásagnar- stig sögunnar. Líkt og Bernharður upp- sker dr. Lassi mótlæti og háðsglósur fyrir framtíðaráform sín í bernsku. Munurinn á þeim er sá að dr. Lassi lætur bugast og velur hið örugga og hag- nýta fram yfir drauma sína. Bernharður stendur hins vegar með draumum sínum þrátt fyrir efasemdir foreldranna. Örnefnafræðin á hug hans allan og hann mætir þeirri hugsun hvarvetna, „jafnvel sem lykt í andrúmsloftinu.“5 Það er ekki fyrr en eftir kynnin við Bernharð sem dr. Lassi ákveður að gera síðbúna uppreisn gegn foreldrum sínum og gerast rithöfundur. Sú uppreisn raun- gerist á síðum upphafskaflans og ein- kennist af hugarflugi þar sem frásögnin flögrar fram og til baka – og líkt og víð- ast hvar í bókinni er afskaplega langt á milli greinaskila. Engin persóna hefur ríflegri nærveru en Fastagestur, sá eldheiti náttúruunn- andi, heimsósómaskáld, uppreisnar- seggur og fræðimaður sem stígur fram á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.