Tímarit Máls og menningar - 01.09.2017, Blaðsíða 58
58 TMM 2017 · 3
Kristín Guðrún Jónsdóttir
Leitin að rótunum
Um Esmeröldu Santiago
Ritverk Esmeröldu Santiago bera þess merki að hún á rætur að rekja til
tveggja ólíkra menningarheima. Hún fæddist á Púertó Ríkó árið 1948 en
fluttist til Bandaríkjanna þrettán ára gömul. Lífshlaup og skáldskapur
Santiago bregður upp mörgum stefjum í sögu og menningu Púertó Ríkó en
ekki síður eyjarskeggja sem hafa flust á brott til Bandaríkjanna og reynslu
þeirra við að fóta sig í nýju landi. Santiago ólst upp í stórum systkinahópi
við kröpp kjör í uppsveitum eyjarinnar, í hinni svonefndu jíbaro-menningu,
það er sveitamenningu landsins. Púertóríkanski sveitamaðurinn sem býr upp
til fjalla er eins konar tákngervingur fyrir sönn puertóríkönsk gildi; oftar
en ekki hefur þó verið litið niður á þetta fólk þótt það myndi í raun kjarna
menningar landsins. Santiago kynntist líka borgarlífinu ung að aldri þar sem
fjölskylda hennar var á töluverðu flakki um eyjuna og bjó um skeið í höfuð-
borginni San Juan. Árið 1961 fluttist móðir hennar ásamt sjö börnum til New
York og hefur höfundur búið þar síðan. Þar gekk hún í skóla og lærði ensku,
og fljótlega opnuðust henni dyr til að nema leiklist og dans við sviðslista-
skólann Performing Arts High School í New York. Eftir að hún útskrifaðist
þaðan stundaði hún nám að hluta til við kvöldháskóla í nokkur ár meðfram
fullri vinnu en fékk þá styrk til að nema við Harvard háskóla þaðan sem hún
útskrifaðist með hæstu einkunn í kvikmyndagerð árið 1976. Skömmu síðar
stofnaði hún ásamt eiginmanni sínum, Frank Cantor, kvikmynda- og marg-
miðlunarfyrirtækið CANTOMEDIA sem hefur hlotið lofsamlega dóma fyrir
heimildamyndir sínar.
Santiago var komin yfir fertugt þegar fyrsta bók hennar kom út. Það var
When I Was Puerto Rican árið 1993, sem í bókstaflegri merkingu útleggst
Þegar ég var púertóríkönsk. Áður hafði hún skrifað handrit að heimilda-
myndum og birt nokkrar greinar í tímaritum um æsku sína, og var spurð af
útgefanda hvort hún vildi ekki skrifa meira um þessi efni. Þannig varð fyrsta
bók hennar til, í raun svar við beiðni, bók sem byggir á æskuárum hennar á
Púertó Ríkó. Árið 1998 kom út Almost a Woman, sem er sjálfstætt framhald
af fyrstu bók hennar; þar heldur höfundur áfram að segja sögu sína, en er nú
komin til New York. Báðar hafa þessar bækur komið út á íslensku í þýðingu
Herdísar Magneu Hübner undir titlunum Stúlkan frá Púertó Ríkó (2014) og
Næstum fullorðin (2016). Salka gaf út. Önnur „minningabók“ hennar er The