Tímarit Máls og menningar - 01.09.2017, Side 76
76 TMM 2017 · 3
Jonas Hassen Khemiri
Kæra Beatrice
Ásdís Ingólfsdóttir þýddi
Opið bréf til Beatrice Ask, dómsmálaráðherra, sem birtist í Dagens Nyheter í
mars 2013.
Kæra Beatrice,
Það er margt ólíkt með okkur. Þú ert fædd á miðjum sjötta áratugnum,
ég í lok þess áttunda. Þú ert kona, ég er karlmaður. Þú ert stjórnmálamaður,
ég er rithöfundur. En það má samt finna tengingar á milli okkar. Við höfum
bæði lært alþjóðahagfræði (án þess að ljúka prófi). Við erum næstum því með
sömu hárgreiðslu (jafnvel þó háraliturinn sé ólíkur). Við erum bæði fullgildir
þegnar þessa lands, fædd innan landamæra þess, sameinuð af tungumáli,
fána, sögu, innviðum. Við erum jöfn frammi fyrir lögunum.
Þess vegna varð ég hissa á fimmtudaginn þegar þú varst spurð í útvarps-
þættinum „P1 Morgon“ hvort þú sem dómsmálaráðherra hefðir áhyggjur af
því að fólk (borgarar, skattgreiðendur, kjósendur) staðhæfði að það hafi verið
stöðvað af lögreglu og spurt um skilríki eingöngu vegna útlits þess (dökkir,
ekki-ljóshærðir, svarthærðir). Og þú svaraðir:
- Það hvernig fólk upplifir það að vera spurt getur verið mjög einstaklings-
bundið. Sumum þeirra sem hafa áður fengið dóm finnst þeir alltaf vera tor-
tryggðir, þrátt fyrir að það sjáist ekki á neinum hvort hann hafi framið brot.
(…) Til þess að ganga úr skugga um hvort lögreglan vinnur samkvæmt lögum
og reglum þá verður maður að hafa heildarmyndina.
Áhugavert orðalag: „sem hafa áður fengið dóm“. Því það er nákvæmlega
það sem við höfum fengið. Við öll sem erum sek þar til sakleysi er sannað.
Hvenær verður persónuleg upplifun að birtingarmynd rasisma? Hvenær
verður hún mismunun, undirokun, ofbeldi? Og hvernig getur „heildar-
myndin“ útilokað stóran hluta af persónulegri reynslu þjóðfélagsþegnanna?
Hvaða reynsla er tekin með í reikninginn?
Ég hef einfalda ósk til þín, Beatrice Ask. Ég vil að við skiptum um hlutverk
og reynslu. Koma svo. Við gerum þetta bara. Þú hefur oft fengið skrítnar hug-
myndir (ég man enn eftir umdeildri hugmynd um að kynlífskaupendur ættu
að fá heimsent fjólublátt umslag).
Í sólarhring fáum við líkama hvort annars lánaðan. Fyrst fer ég í þinn
líkama til að skilja hvernig tilfinning það er að vera kona í stjórnmálaheimi