Tímarit Máls og menningar - 01.09.2017, Síða 80
80 TMM 2017 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
og ákveðinn dómsmálaráðherra útskýrði að þetta snerist ekki um kynþátta-
mismunun heldur um „persónulega upplifun“. Regluverk valdsins. Ofbeldi í
framkvæmd. Allir voru bara að vinna vinnuna sína. Öryggisverðirnir, lög-
reglumennirnir, tollverðirnir, stjórnmálamennirnir, þjóðin.
Og hér grípið þið fram í fyrir okkur og segið: Hversu erfitt er að skilja
þetta? Allir verða að fara að lögum. Og við svörum: En hvað ef lögin eru
ólögleg?
Og þið segið: Allt snýst um forgangsröðun og við höfum ekki óendanleg
fjárráð. Og við svörum: Hvernig má það vera að alltaf séu til peningar þegar
kemur að því að elta uppi þá sem ekkert eiga, en aldrei þegar þarf að verja þá?
Og þið segið: Hvernig eigum við að samhæfa það að vera með sterkt
félagslegt öryggis- og velferðarkerfi og á sama tíma bjóða alla velkomna?
Og við drögum lappirnar og ræskjum okkur, af því að ef við eigum að vera
alveg heiðarleg þá höfum við ekki kórrétt svar við þessu. En við vitum að
manneskja getur aldrei verið ólögleg og að eitthvað þarf að gera þegar ein-
kennisbúningar valda óöryggi og Lögin snúast gegn sinni eigin þjóð og hér
færð þú þig fullsadda Beatrice Ask, þú reynir að yfirgefa líkama okkar, þú
ert algjörlega sammála lesendum um að þetta hafi staðið yfir of lengi, þetta
eru bara endurtekningar, þetta hafi engan tilgang, og þú hefur rétt fyrir þér,
þetta tekur engan enda, það er engin lausn, enginn neyðarútgangur, allt
endurtekur sig, því stjórnkerfið mun ekki hverfa bara af því að við kjósum
á móti Reva1, Reva er rökrétt framhald á stöðugri lágstemmdri undirokun,
Reva mun lifa áfram í vanhæfi okkar til að umskapa staðnaða sjálfsmynd
þjóðarinnar og í kvöld í röðinni inn á skemmtistað í nágrenni við þig dreifa
hinir ekki-hvítu sér kerfisbundið svo þeir verði ekki stöðvaðir af dyravörðum
og á morgun á biðlistanum eftir íbúð nota þeir sem eru með útlend eftirnöfn
nöfn sambýlinga sinna til að koma í veg fyrir að þeir lendi aftast í röðinni
og nýlega skrifaði venjulegur Svíi í atvinnuumsókn: „FÆDD OG UPPALIN
Í SVÍÞJÓГ með hástöfum bara af því hún veit hvað gerist annars. Allir vita
hvað gerist annars. En enginn gerir neitt. Í staðinn einbeitum við okkur að
því að finna þær manneskjur sem hafa flúið hingað í leit að því öryggi sem við
erum svo stolt af að geta boðið (sumum af okkar) samborgurum. Og ég skrifa
„við“, því við erum hluti af þessari heild, þessum samfélagslíkama, þessu við.
Þú mátt fara núna.
Heimildir
Khemiri, Jonas Hassen. 2013a. Jag ringer mina bröder. Bonnier Pocket, Falun.
Khemiri, Jonas Hassen. 2013b. Sweden’s Closet Racists. The New York Times, 21. apríl.