Tímarit Máls og menningar - 01.09.2017, Blaðsíða 85
J a n e A u s t e n : Æ v i , á s t i r o g f r a m h a l d s l í f
TMM 2017 · 3 85
leikrit, ritgerðir og stuttar sögur. Hún safnaði saman æskuverkum sínum frá
árunum 1787 til 1793 og skipti þeim í þrjár bækur sem varðveist hafa í hand-
riti, en þær bera einfaldlega nöfnin Volume the First, Volume the Second og
Volume the Third. Því næst skrifaði hún stuttu bréfaskáldsöguna Lady Susan
1794 sem kvikmynduð var undir heitinu Love and Friendship (2016) með
bresku leikkonunni Kate Beckinsale í hlutverki lafði Susan. Árið 1795 hófst
Austen handa við að skrifa aðra bréfaskáldsögu Elinor and Marianne sem
varð síðar að skáldsögunni Sense and Sensibility, fyrsta útgefna verkinu sem
Austen sendi frá sér, en skáldsagan kom út árið 1811, nafnlaust eins og allar
sögur hennar á meðan hún lifði.3
Sama ár, í desember 1795, hitti skáldkonan laganemann Tom Lefroy, en
ýmsir ævisagnahöfundar telja að samband hennar og Toms hafi haft djúp-
stæð áhrif á skáldkonuna. Þau dönsuðu nokkrum sinnum saman og hún
daðraði við hann að eigin sögn, en hann var fátækur og ekkert varð úr sam-
bandi þeirra þrátt fyrir gagnkvæma hrifningu. Tom fór til Írlands, giftist vel
efnaðri konu og varð forseti hæstaréttar í Írlandi árið 1852. Frægasta ævi-
sagan sem gerir sér mat úr þessu sambandi er Becoming Jane Austen frá 2003
eftir Jon Spence, en á henni er lauslega byggð kvikmyndin Becoming Jane
(2007) með Anne Hathaway í hlutverki skáldkonunnar.4
Árið 1797 lauk Austen við handrit að skáldsögunni First Impressions en
hún varð síðar að frægasta verki hennar Pride and Prejudice sem kom út
1813. Skrif Jane voru gjarnan lesin upp fyrir nánustu fjölskyldumeðlimi
þeim til skemmtunar. Faðir Jane var mjög hvetjandi og sendi handritið First
Impressions til útgefanda í London en því var hafnað og sent til baka ólesið.
En þetta varð ekki til þess að draga úr skrifum Jane sem fékk frá föður sínum
skrifborð að gjöf sem er talið hafa varðveist til dagsins í dag. Á árunum 1798
til 1799 lagði Austen drög að handritinu „Susan“ sem varð síðar Northanger
Abbey, en það er forvitnilegt að þegar fyrir 25 ára aldur hafði Jane Austen
lagt drög að þremur af þeim sex skáldsögum sem hún skildi eftir sig þegar
hún lést aðeins 41 árs gömul.
Í desember 1800 ákvað George Austen að setjast í helgan stein og flutti
ásamt konu sinni og dætrunum tveimur til borgarinnar Bath. Jane varð
miður sín við þessar fréttir þar sem hún taldi borgarlífið ekki eiga við sig.
Bróðursonur hennar sagði síðar að Hampshire sveitin hafi verið „vagga snilli-
gáfu hennar“5 og byggði þá ályktun eflaust á þeirri staðreynd að Jane Austen
gekk illa að skrifa á meðan hún bjó í Bath og virðist ekki hafa liðið vel þar.
Talið er að foreldrar systranna hafi m.a. valið bæinn vegna þess að hann
þótti góður staður til þess að finna eiginmenn fyrir ógiftar dætur. Bath gerði
fjölskyldunni það kleift að fara í sumarleyfi á ýmsa staði við sjávarsíðuna á
suðurströnd Englands eins og til Lyme Regis, þar sem Persuasion gerist að
hluta til.
Í slíku sumarleyfi 1801, líklega í bænum Sidmouth eða Colyton, er talið
að Jane hafi kynnst herramanni sem hún hafi orðið verulega hrifin af og