Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Blaðsíða 19
17
Tafla 2. Magnvísitala sjávarafurðaframleiðslu 1975—1982.
1975 = 100.
Áætlun
1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982
Magnvísitala 111 135 143 164 182 184 161
Breytingar frá fyrra ári, % 11,5 21,1 5,7 15,2 10,5 1,5 -12,7
aukist um 45% frá fyrra ári. Árið 1982 voru alls verkuð um 12 þúsund tonn af
skreið.
Saltfiskverkun jókst mjög árin 1980 og 1981, 30% fyrra árið og 15% síðara
árið. Þessa aukningu mátti rekja til mikillar eftirspurnar eftir saltfiski í Suður-
Evrópu og hækkandi verðlags. Á árinu 1982 stöðvaðist þessi þróun, en þá dróst
saltfiskverkunin saman um 2-3%. Þann samdrátt má að hluta rekja til minni afla
en einnig til óhagstæðrar verðþróunar, því verð á saltfiski lækkaði um nálægt
18% í dollurum frá fyrra ári.
Freðfiskframleiðsla jókst um 2-3% á sama tíma og samdráttur í saltfiskverkun
og skreiðarverkun varð meiri en sem nam minnkun botnfiskaflans. Mest varð
aukningin í frystingu karfa og grálúðu vegna aukins afla þessara tegunda. Sala á
frystum karfa var hins vegar treg og söfnuðust því nokkrar birgðir af þeirri vöru.
Verðlag á frystum fiski í Bandaríkjunum hélst sem næst óbreytt í dollurum árið
1982 miðað við árið áður.
Tafla 3. Útflutningur sjávarafurða 1977—1982.
Hlutfallsleg skipting.
1977 1978 1979 1980 1981 1982
Frystar botnfiskafuröir.......................................... 44,6 43,7 43,8 38,2 33,6 43,3
Aðrar frystar afurðir............................................... 5,4 4,7 6,3 5,5 4,8 6,6
Salttiskur ........................................................ 14,5 13,3 14,7 16,8 20,9 24,8
Skreið.............................................................. 3,2 5,5 2,5 10,0 15,9 6,2
Mjöl og lýsi .................................................. 23,4 22,3 18,7 15,5 12,7 5,8
Saltsíld ........................................................... 2,7 3,1 3,8 3,1 3,1 4,3
Nýrfiskur........................................................... 1,9 4,2 5,6 6,5 3,9 6,1
Aðrar fiskafurðir................................................... 4,3 3,2 4,6 4,4 5,1 2,9
Samtals.................................................. 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0 100,0
Útflutningur sjávarafurða minnkaði nokkru meira en framleiðslan árið 1982
og töluvert safnaðist því fyrir af birgðum. Einkum söfnuðust fyrir miklar birgðir
af skreið en jafnframt töluvert af frystum karfa og saltsíld vegna framleiðslu-
aukningar.
Það sem af er árinu 1983 hefur fiskafli dregist enn frekar saman miðað við
sama tíma í fyrra. Mestu skiptir, að bátaaflinn á vetrarvertíð varð um fimmtungi
minni í ár en í fyrra, en fyrri helming ársins var bátaaflinn, metinn á föstu verði,
17% minni en á sama tíma 1982. Togaraaflinn hefur þó dregist mun minna
2