Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Blaðsíða 54
52
lækkaði að mun. Þá var skreiðarverð lægra að meðaltali en árið áður og mjöl- og
lýsisverð um fjórðungi lægra í dollurum en árið 1981. Álverð lækkaði mjög
mikið árið 1982 og samkvæmt verslunarskýrslum var meðalverð á áli um
fimmtungi lægra í dollurum en árið 1981. Álverðið fór lækkandi eftir því sem leið
á árið og var á síðasta fjórðungi þess 5% lægra í dollurum en að meðaltali á
árinu. Svipaða sögu er að segja af verði á kísiljárni, en það lækkaði þó mun
minna að meðaltali en álverð, eða um 13-14% í dollurum, en var á fjórða
ársfjórðungi 10% lægra í dollurum en að meðaltali á árinu. Hin mikla
verðlækkun á áli dró meðalverð alls útflutnings nokkuð niður, en að áli frátöldu
lækkaði útflutningsverð að meðaltali um 8'/2% í dollurum.
Meðalverð vöruinnflutnings hækkaði um 58,9% í krónum árið 1982. Reiknað
í dollurum lækkaði innflutningsverð um 8%. Þar af lækkaði innflutningsverð á
olíu samkvæmt verslunarskýrslum um 10,5% í dollurum, en að olíuvörum
frátöldum nemur lækkun innflutningsverðs 7V2%. Er það nokkru meiri lækkun
en á innflutningsverði OECD-ríkja árið 1982 og mun meiri en á útflutningsverði
sömu ríkja. Raunar er dollargengi óheppilegur mælikvarði á erlenda verð-
breytingu innflutnings íslendinga, þar sem tiltölulega lítill hluti hans er í
dollurum. Miðað við meðalgengi helstu viðskiptamynta íslendinga lækkaði verð
innflutnings án olíu um 0,7%. Verð á neysluvörum hækkaði í krónum umfram
meðaltalið, en verðhækkun á fjárfestingarvörum og rekstrarvörum (án olíu) var
heldur undir meðaltali. Sem fyrr segir var olíuverð samkvæmt verslunarskýrslum
um 10,5% lægra í dollurum í fyrra en árið áður. Verð á bensíni á Rotterdam-
markaði var lágt á fyrstu mánuðum ársins 1982 en hækkaði töluvert í
sumarbyrjun með aukinni eftirspurn á þeim árstíma. Undir lok ársins lækkaði
bensínverð síðan á ný. Verð á gasolíu hélst fremur lágt fram eftir árinu 1982,
Tafla 21. SkráS olíuverð á Rotterdam-markaði eftir mánuðum 1980-1983.
$ pr. tonn.
Bensín Gasolía
1980 1981 1982 1983 1980 1981 1982 1983
Ársmeöaltal 356 351 319 317 299 290
Janúar 388 356 321 287 345 310 316 274
Febrúar 373 350 300 261 309 306 281 242
Mars 370 342 273 262 299 308 262 235
Apríl 360 340 308 291 319 290 280 249
Maí 363 334 349 288 320 272 296 240
Júní 359 346 351 297 312 272 285 245
Júlí 349 374 330 304 287 272
Ágúst 312 362 323 271 293 286
September 324 360 337 284 297 305
Október 349 361 333 303 311 314
Nóvember 371 356 309 323 323 295
Desember 353 335 288 300 323 287