Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Blaðsíða 73
71
koma ríkissjóðs var óhagstæð um tæplega 1 200 milljónir króna á fyrstu sex
mánuðum þessa árs. Þetta er miklu lakara en á sama tíma í fyrra, þegar
greiðsluafkoman var óhagstæð um tæplega 100 milljónir króna.
Þessar tölur sýna, hversu mjög afkoma ríkissjóðs hefur versnað að undan-
förnu. Versnandi staða ríkissjóðs kemur ennfremur fram í verulega aukinni
skuldasöfnun við Seðlabankann. Þannig nam nettóskuld ríkissjóðs við Seðla-
bankann um 155 milljónum króna í árslok 1982 og hafði þá raunar ekki í annan
tíma verið lægri. í lok ársins 1981 var nettóskuldin helmingi meiri miðað við fast
verðlag og enn hærri næstu árin þar á undan. Fjárþörf ríkissjóðs óx hins vegar
ört á fyrstu mánuðum þessa árs, enda sífellt vaxandi rekstrarhalli. í lok júní var
svo komið, að nettóskuldin hafði vaxið upp í meira en 1 300 milljónir króna, en
það er meira en tvoföldun miðað við sama tíma í fyrra, reiknað á föstu verðlagi.
Á hitt ber þó að líta, að síðasta ár var venju fremur hagstætt í þessu tilliti og
meðalskuld ríkissjóðs með lægsta móti. Skuldastaða ríkissjóðs gagnvart Seðla-
bankanum í lok júnímánaðar síðastliðins var þannig svipuð og á árunum 1980 og
1981.
Meginskýringin á óhagstæðri rekstrar- og greiðsluafkomu ríkissjóðs á fyrri
helmingi ársins felst í afturkipp í þjóðarútgjöldum og þar með samdrætti í
veltusköttum. Þannig nemur hækkun tekna af almennum aðflutningsgjöldum
um 33% í krónutölu á fyrstu sex mánuðum þessa árs, sem svarar til nær
fjórðungs samdráttar að raungildi frá sama tíma í fyrra. Tekjur af söluskatti hafa
Tafla 33. Þróun helstu tekju- og gjaldaliða ríkissjóðs janúar-júní 1981-1983.
í milljónum króna % breyting milli ára Hlutfallsleg skipting, %
1981 1982 1983 1981 1982 1983 1981 1982 1983
Tekjur alls 2 543 4 067 6 402 61,4 59,9 57,4 100,0 100,0 100,0
Beinir skattar 423 605 1 012 64,0 43,0 67,3 16,6 14,9 15,8
Óbeinir skattar 2 079 3 380 5 233 60,8 62,6 54,8 81,8 83,1 81,7
Almennir tollar 367 642 851 58,9 74,9 32,6 14,4 15,8 13,3
Innflutningsgjald af bifreiðum .. 63 75 52 50,0 19,0 -30,7 2,5 1,8 0,8
Söluskattur 873 1 447 2 341 63,5 65,8 61,8 34,3 35,6 36,6
Launaskattur 123 185 274 57,7 50,4 48,1 4,8 4,5 4,3
Rekstrarhagnaður ÁTVR 177 268 393 52,6 51,4 46,6 7,0 6,6 6,1
Ýmis vörugjöld 190 298 520 69,6 56,8 74,5 7,5 7,3 8,1
Aðrir óbeinir skattar 286 465 802 58,9 62,6 72,5 11,3 11,5 12,5
Aðrartekjur 41 82 157 64,0 100,0 91,5 1,6 2,0 2,5
Gjöld alls 2 605 4 029 7 213 60,7 54,7 79,0 100,0 100,0 100,0
Almenn stjórnsýsla o. fl 249 380 725 50,9 52,6 90,8 9,6 9,4 10,1
Menntamál o. fl 432 680 1 198 59,4 57,4 76,2 16,6 16,9 16,6
Heilbrigðismál 190 321 685 59,7 68,9 113,4 7,3 8,0 9,5
Tryggingamál 820 1 211 2 030 80,6 47,7 67,6 31,5 30,1 28,1
Húsnæðis-og félagsmál 86 138 294 30,3 60,5 113,0 3,3 3,4 4,1
Vega- og samgöngumál 223 368 665 70,2 65,0 80,7 8,6 9,1 9,2
Niðurgreiðslur 184 356 526 60,0 93,5 47,8 7,0 8,8 7,3
Útflutningsuppbætur 96 85 108 45,5 -11,5 27,1 3,7 2,1 1,5
Önnurgjöld 325 490 982 38,9 50,8 100,4 12,4 12,2 13,6