Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Blaðsíða 97
95
Innlán
Ávísana- og hlaupareikningar
Almennar sparisjóðsbækur ..
3ja mán. sparireikningar ....
12 mán. sparireikningar ....
Útlán
Endurseljanleg lán .........
Önnur afurðalán ............
Hlaupareikningslán .........
Víxlar .....................
Skuldabréf .................
Vanskilavextir .............
Nafnvextir á ári, %
Fyrir breyt- Eftir breyt-
mgu mgu
19,0 27,0
34,0 42,0
37,0 45,0
39,0 47,0
29,0 ***
33,0 39,0
33,0 39,0
32,0 38,0
40,0 47,0
48,0 60,0
Frá 1. nóvember komu til framkvæmda nýjar reglur, sem fela í sér grundvallar-
breytingar á viðskiptum Seðlabanka og innlánsstofnana. Meginatriði hinna nýju
reglna eru þessi. Sett verða ákveðin hættumörk á yfirdrátt hverrar
innlánsstofnanar með hliðsjón af stærð hennar og þess krafist, að gerðar verði
ráðstafanir til úrbóta, fari yfirdráttur yfir mörkin. Refsivextir af yfirdrætti verða
stighækkandi, auk þess sem beitt verður frekari viðurlögum, ef reglum er ekki
fylgt. Vaxtaútreikningur af yfirdrætti miðast við sérstök yfirdráttarþrep, sem
Seðlabankinn setur hverri stofnun. Dráttarvextir reiknast af meðalskuld á
hverju 10 daga tímabili og færast eftir á. Vaxtafótur verður þeim mun hærri sem
meðalskuldin er meiri. Á fyrsta þrepi reiknast 4,5% vextir á mánuði, en á
öðrum þrepum reiknast 0,5% hærri vextir en á næsta þrepi á undan. Á hæsta
yfirdráttarþrepi verða meðalvextir af óumsömdum yfirdrætti 8% á mánuði.
Víxilkvótar við Seðlabankann verða enn um sinn með sama sniði og verið hefur,
en innlánsstofnunum, sem eiga í erfiðleikum vegna lausafjárstöðu, sem þær geta
ekki leyst með kvótavíxlum, verður gefinn kostur á að semja við Seðlabankann
um bráðabirgðalán í stað yfirdráttar, enda hafi þá verið mörkuð stefna í
málefnum stofnunarinnar, sem beinir lausafjárstöðunni á rétta braut á ný.
Samfara þessum breytingum á reglum um viðskipti Seðlabanka og viðskipta-
bankanna var sérstök binding af innlánum felld niður um sinn.
Framfærsluvísitalan í byrjun nóvember reyndist 210,10 stig og hafði hún
hækkað um 17,51% frá þvi að hún var síðast reiknuð í ágústbyrjun. Við
útreikning verðbótavísitölu dragast 2,08% frá hækkun framfærsluvísitölu vegna
ákvæða laga nr. 13/1979 og vegna ákvæða bráðabirgðalaga ríkisstjórnarinnar frá
í ágúst dregst frá helmingur þess, sem eftir stendur. Hækkuðu öll laun því um
7,72% frá 1. desember.
Verðlagsráð sjávarútvegsins ákvað á fundi sínum hinn 17. nóvember að
almennt fiskverð skyldi hækka um 7,72% frá 1. desember, frá því verði, sem gilti