Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Blaðsíða 101
99
Samkvæmt ákvörðun yfirnefndar Verðlagsráðs sjávarútvegsins hækkaði al-
mennt fiskverð um 14,74% frá 1. mars og gildir hið nýja verð til maíloka.
Áfengis- og tóbaksverð var hækkað um 15% að meðaltali.
Verð til bænda var hækkað um 19,34%.
Alþingi samþykkti lánsfjárlög fyrir árið 1983. Helstu ákvæði laganna eru
þessi:
(a) Fjármálaráðherra er heimilað að taka erlend lán að fjárhæð 852,1 milljónir
króna og lán á innlendum lánsfjármarkaði að fjárhæð 188 milljónir króna.
(b) Landsvirkjun er heimilað að taka erlend lán að fjárhæð 860 milljónir króna.
(c) Nokkrum hitaveitum er heimilað að taka erlend lán til hitaveitufram-
kvæmda og skuldbreytinga samtals að fjárhæð 315,9 milljónir króna.
(d) Framkvæmdasjóði íslands er heimilað að taka erlend lán að fjárhæð 612
milljónir króna.
(e) Ýmsum aðilum er heimiluð erlend lántaka samtals að fjárhæð 84 milljónir
króna.
(f) Fjármálaráðherra er heimilað að taka erlend lán vegna endurskoðaðrar
lánsfjáráætlunar fyrir árið 1982 er nemi allt að 100 milljónum króna.
(g) Ýmis ákvæði eru sett um skerðingu lögboðinna framlaga til ýmissa sjóða og
framkvæmda.
Með lögum nr. 19/1983 var kveðið á um álagningu sjúkratryggingagjalds á árinu
1983. Skal gjaldið vera 2% af gjaldstofni álagðra útsvara umfram krónur
153.900.
Alþingi samþykkti lög nr. 20/1983 um sérstakan skatt á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði. Lögin kveða á um framlengingu fyrri ákvæða um þennan
skatt fyrir árið 1983 og helst skatturinn óbreyttur, 1,4% af fasteignamatsverði.
Lög um vísitölu byggingarkostnaðar nr. 18/1983. Kveða lögin á um, að
grundvelli vísitölu byggingarkostnaðar, sem Hagstofa íslands reiknar, skuli
breytt til samræmis við endurskoðun, sem fram hefur farið á honum. Jafnframt
kveða lögin á um, að Hagstofa íslands skuli eigi sjaldnar en á 5 ára fresti athuga,
hvort byggingarhættir hafi breyst svo, að ástæða sé til að endurskoða grundvöll
vísitölu byggingarkostnaðar.
Með lögum nr. 21/1983 um breyting á lögum nr. 75/1981 um tekjuskatt og
eignarskatt er kveðið á um, að menn, sem láta af störfum vegna aldurs, skuli fá
til frádráttar helming tekna sinna síðustu tólf mánuðina áður en þeir láta af
störfum.
Maí.
Framfærsluvísitalan í maíbyrjun reyndist 298 stig og nam hækkunin 23,4% á
tímabilinu febrúar til maí 1983.
Vegna opinberra umræðna um breytingar á gengi krónunnar í tengslum við