Þjóðarbúskapurinn - 01.08.1983, Blaðsíða 95
93
um breytingu á orlofslögum, þannig að laugardögum og frídegi verslunar-
manna verði sleppt í talningu orlofsdaga.
Sama dag og bráðabirgðalögin voru gefin út var ákveðið að fella gengi
krónunnar um 13% gagnvart bandaríkjadollara sem samsvarar um 15% hækkun
á verði dollars í íslenskum krónum. Gjaldeyrisdeildir banka, sem lokaðar höfðu
verið frá 12. ágúst, opnuðu að nýju hinn 23. ágúst, en frá því að gengisskráning
var felld niður lækkaði gengi bandaríkjadollars gagnvart flestum öðrum
myntum. Hækkuðu því þessar myntir meira gagnvart krónunni en dollarinn og
reyndist vegið meðalverð erlendra mynta vera um 16,7% hærra en það var fyrir
niðurfellingu gengisskráningar. Svarar þessi hækkun til um 14,3% lækkunar á
meðalgengi krónunnar.
Með reglugerð nr. 466 var innflutningsgjald á bifreiðum hækkað um 7%. Af
bifhjólum greiðist 17% gjald.
Verð áfengis og tóbaks var hækkað um 12% að meðaltali.
September.
Verðbótahækkun launa fyrir tímabilið september til nóvember samkvæmt
ákvæðum laga nr. 13/1979 reyndist 10,40%. Samkvæmt sérstökum ákvæðum í
kjarasamningum ASÍ og VSÍ og bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar komu
2,9% til frádráttar og hækkuðu því allir launataxtar um 7,50% frá 1. september.
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins ákvað að almennt fiskverð á tímabil-
inu 1. september til 30. nóvember skyldi vera 16% hærra en á næstliðnu tímabili.
Afurðaverð til bænda var hækkað um 14,71%.
Hinn 1. september tókust samningar milli BSRB og fjármálaráðherra um
aðal- og sérkjarasamninga fyrir tímabilið frá 1. ágúst 1982 til 30. september
1983. Samningarnir kveða á um að grunnkaup skuli hækka um 4% hinn 1.
september 1982 og um 2,1% til viðbótar 1. janúar 1983. Jafnframt kveða
samningarnir á um starfsaldurshækkanir og flokkatilfærslur. Að auki er samið
um lengingu orlofs um fjóra daga þannig að orlofsdagar verði 24 virkir dagar hið
fæsta og teljast þá laugardagar ekki með.
Sérstök bindiskylda var lækkuð úr 5% í 2% af heildarinnlánum.
Hinn 15. september hófst sala á nýjum flokki verðtryggðra spariskírteina
ríkissjóðs, 2. fl. 1982. Kjör skírteinanna eru hin sömu og í 1. fl. 1982.
Hinn 21. september voru gefin út bráðabirgðalög (nr. 81), um Olíusjóð
fiskiskipa og hækkun fiskverðs. Kveða lögin á um stofnun Olíusjóðs fiskiskipa,
sem skuli á tímabilinu frá 1. september til 31. desember 1982 greiða niður verð á
brennsluolíu til íslenskra fiskiskipa. Varið skal til sjóðsins 30 milljónum af
greiðsluafgangi Tryggingasjóðs fiskiskipa og ennfremur er sjóðnum heimilað að
taka lán að fjárhæð 30 milljónir króna. Áætlað er, að niðurgreiðslur sjóðsins
nemi um 22% af olíuverði. Jafnframt var kveðið á um hækkun almenns fiskverðs