Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2003, Page 4

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2003, Page 4
Brynhildur Þórarinsdóttir Frá ritstjóra „Hver verð ég þegar nýjasta tækni og vísindi hafa aukið lífslíkur mínar um helming með því að rækta úr mér ýmis gen sjúkdóma og fötlun- ar?" spyr Úlfhildur Dagsdóttir í upphafi greinar Sinnar um hið hávísindalega en um leið bók- menntalega fyrirbæri sæborgir. Úlfhildur veltir því fyrir sér hvernig persónufrelsi verði háttað þegar hægt verður að hreinsa alla varasama arf- bera úr manneskjum. Skyldi maður geta valið að vera „venjulegur"? Hvernig verður millibils- ástandið þegar sumir eru orðnir fullkomnari en aðrir, til dæmis langlífari, fallegri eða gáfaðri? Eins og Úlfhildur bendir á hefur það komið í hlut skáldskapar að svara spurningum af þess- um toga, einkum skáldsagna, smásagna, leik- rita, kvikmynda, myndasagna og tölvuleikja. Ýmis þessara verka teljast viðurkenndar fagur- bókmenntir, eins og LoveStar, vísindaskáld- saga Andra Snæs Magnasonar, en bókin var sem kunnugt er tilnefnd til íslensku bók- menntaverðlaunanna. Meirihluti þeirra er hins vegar talinn til afþreyingarverka, svo sem vís- indafantasíur, hrollvekjur, glæpa- og hetjusög- ur. Kvikmyndahúsin verða sneisafull af stökk- breyttum, genabættum og tæknivæddum söguhetjum slíkra verka í sumar. Margar þeirra skjóta upp kollinum í grein Úlfhildar. íslendingar hafa líka fengist við vísinda- skáldskap. Upphaf íslenskra vísindaskáldsagna má rekja til Kristmanns Guðmundssonar, eins og Þorfinnur Skúlason sýnirfram á í grein sinni „Augun gul, hárið blátt og blóðið grænt". Krist- mann virtist meðvitaður um að ýmsum kunni að þykja þessi gerð skáldskapar ómerkileg og skrifaði fyrstu sögurnar því undir dulnefninu Ingi Vítalín. í Ferðinni til stjarnanna sem kom út í Reykjavík árið 1959 situr Ingi Vítalín á tali við geimveruna Hvorr frá jarðstjörnunni Kim, en Hvorr er sagður afburða geðfelldur maður þótt hár hans sé blátt, blóðið grænt og augun gul. Saga Kristmanns er ekki framtíðarsaga heldur á sér stað í samtíðinni en á öðrum hnetti. Saga Andra Snæs Magnasonar gerist hins vegar í óskilgreindri framtíð. Vísindamenn hafa þá náð tökum á þeirri tækni sem nota má til að stýra hugsunum og tilfinningum fólks svo sálar- kreppa á borð við eftirsjá og iðrun ætti að vera liðin tíð. Berglind Steinsdóttir rýnir í bók Andra Snæs og veltir því m.a. fyrir sér hvort hún sé lykilsaga um íslenskan veruleika. Þótt vísindaskáldsögur sýni gjarnan heim sem virðist fjarlægur og óraunverulegur erum við að vissu leyti sokkin á bólakaf í fen ofur- tækninnar. Nýlokið er stríði þar sem beitt var allra fullkomnustu nútímatækni til að hitta að- eins „réttu" skotmörkin. Reyndar hafa hryðju- verkamenn ávallt beitt sömu aðferð - að miða á mikilvægt skotmark og eyðileggja það en það þykir einhverra hluta vegna af öðrum toga. Tæknivædda stríðið telst „hreint" og „snyrti- legt". I sjónvarpinu birtist stríðið sem flugelda- sýning í fjarska; skotið er úr svo mikilli fjarlægð og með svo miklum tæknibúnaði að böðlarnir þurfa aldrei að finna fyrir samviskubiti eða iðr- un, þeir eru staddir í veruleika LoveStar þar sem allar ákvarðanir eru hárrétt útreiknaðar. „Kalda stríðið" hefur öðlast nýja merkingu. Stríðið i írak stóð stutt en það breytti engu að síður þeirri heimsmynd að vesturveldin væru ein heild. Gjáin sem stríðið sprengdi milli Evr- ópu og Bandaríkjanna virðist bæði djúp og breið. David Green, stjórnmálafræðingur við Hofstra-háskóla í Bandaríkjunum, féllst á að skrifa um þetta ástand fyrir tmm. Grein hans sýnir að önnur eins gjá er milli þeirra Banda- ríkjamanna sem styðja stefnu forseta síns og hinna sem hafna henni algerlega, a.m.k. ef marka má orð Johns le Carré sem Green vitn- ar til: „Bandaríkjamenn eru gengnir inn í enn eitt vitskerta skeiðið í sögu sinni, en þetta skeið er verra en nokkurt sem ég minnist."

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.