Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2003, Page 42

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2003, Page 42
Lilja Hjartardóttir Afganistan Land stríðshrjáðrar og sundraðrar þjóðar „Guð fer bara til Afganistans til að gráta" / bókinni Guð ferbara tilAfganistans t/iaðgráta' segir Shirin-Gol frá lífi sínu íglundroða og iögieysu stríðsátaka. Um leið lýsir hún því hvernig líf einstaklinga og kynslóða er eyðilagt í fullkomnu tilgangsleysi. Þegarhún varbarn að aldri komu Rússarnir til Afganistans og sprengdu og eyðilögðu. I kjölfarið komu ólíkir mujahedin-hópar, þá talibanar, andstæðingar þeirra Norðurbandalagið og loks Bandaríkjamenn. Faðir hennar og bræður börðust með skæruliðum en systur hennar tældu sovéska hermenn og drápu. Fjölskyldan flúðl úr fjallakofa til Kabúl og þökk sé Rússunum, sem hugðu á nútímavæðingu og skipuðu öllum stúlkum i skóla, þá lærðl Shirin-Gol að lesa og skrifa. Áköf mót- mæli föður hennar máttu sín einskis. Flann var þess fullviss að hún og systur hennar yrðu forvitn- ar og ruglaðar og enginn myndi vilja giftast þeim. Shirin-Gol ætlaði sér að verða læknir. Um 14 ára aldur tapaði eldri bróðir hennar fjár- hættuspili og gifti hana spilafélaganum upp í skuldina. Henni féll vel við félagann, Morad, sem varð að berjast með Rússum gegn sínu eigin fólki. Shirin-Gol tókst hvort tveggja að halda giftingunni og einni meðgöngu leyndri og hélt áfram að sækja skólann. Þó kom að því að þau Morad urðu að flýja Kabúl og margra ára líf á flótta tók við. Einu störfin á flóttanum voru brask og smygl á ópíumi og vopnum. Morad slasaðist og varð dópinu að bráð. í tómarúminu sem myndaðist eftir að Sovétmenn og Banda- ríkjamenn fóru 1992 hófst borgarastríð eða bræðrastríðið, eins og móðir hennar kallaði það. Hún fullyrti að það yrði grimmilegra og verra fyrir konurnar en stríðið gegn Rússunum. Fólkið hennar Shirin-Gol flúði skæruiiðana, sem hirtu af því toll; mat, teppi, drengi í hernað, stúlkur og konur í kynlífsþrælkun. Shirin-Gol slapp með klókindum. Þau flúðu árásir, hefnd- arárásir og gagnárásir, sem voru fjármagnaðar af Pakistan, íran, Sádi-Arabíu og fleiri utanað- komandi ríkjum. Árin líða og Shirin-Gol eignast mörg börn. Faðir eins þeirra er smyglforingi hjá Morad, en til hans varð hún að leita meðan Morad sat í. fangelsi. Annað barn fæddist eftir hópnauðgun lögreglumanna. Shirin-Gol heldur lífi í þeim öll- um og Morad elskar þau öll. Hvar sem hún dvelur nýtir hún menntun sína við að hjálpa konum og kennir börnum að lesa. Karlarnir eiga erfitt með að þola hversu mikið hún kann. Kon- urnar, sem búa við harðræði og kúgun, dá hana. Á góðu tímabili dvelur hún í smábæ og vinnur sem aðstoðarkona læknisins, sem er kona. Þær eru einu konurnar í bænum sem fá að vera einar úti á götu. Einn daginn birtast talibanar á glæsijeppum með arabískum stöfum til að frelsa konurnar í nafni guðs og múlla Omars. Shirin-Gol og Morad missa vinnuna og fjölskyldan sveltur. Börnin mega ekki leika sér og það er bannað að hlusta á tónlist, dansa eða horfa á sjónvarp og konurnar verða að klæðast burka. Ríkur og fal- legur talibani biður dóttur Shirin-Gol og Morads, sem ólm vill giftast honum. Fyrir brúð- arverðið kemst fjölskyldan til frans. Þar fær Shirin-Gol vinnu, Morad spilar fjárhættuspil og smyglar og börnin komast í fyrsta sinn í skóla. Þegar á líður er flóttafólkinu gert erfiðara um vik að vera í íran og þau þiggja greiðslu frá Sameinuðu þjóðunum til að halda heim þar sem örbirgðin bíður þeirra. Morad verður ópí- umi endanlega að bráð. Tengdasonurinn er drepinn af öðrum talibönum eftir að hafa hald- ið því fram að stefna þeirra væri andstæð vilja guðs. Shirin-Gol flækist um og endar í Kabúl þar sem hún vinnur sem ráðskona, hnýtir teppi og kennir stúlkum. Hún heldur lífi í börnunum og á fyrir dópi handa Morad. Það kemst upp um hana en hún heldur lífi, fær að betla á göt- unum og telur sig heppna. Hún þarf ekki að selja sig. Loks er henni allri lokið. Hún fer með börnin á eina staðinn þar sem mat er að fá, á munaðarleysingjahælið, sker sig á púls, en er bjargað og tekur upp þráðinn. Enda þurfa æ fleiri á henni að halda, barnabörn, sturluð mág- kona og slasaður bróðir. Saga Shirin-Gol er saga milljóna kvenna í Afganistan og á öðrum átakasvæðum um allan heim.2 Hún sýnir hvernig konurnar halda hrökt- um fjölskyldum sínum á lífi í stríðsátökum. Hvernig þær fórna öllu fyrir hjálparvana ættingja og börnin, sem halda áfram að fæðast og deyja, enda hirða stjórnendur hjálparsamtaka og flóttamannabúða lítt um að útvega getnað- arvarnir og heilbrigðisþjónusta hrynur í átökun- um. Þessum konum, sem halda lífi í samfélag- inu, m.a. með því að útvega læknishjálp, reka skóla og vinnustaði, er síðan markvisst haldið utan við hið svokallaða friðarferli og ákvarðanir um hvernig haga skuli uppbyggingu samfélags- ins. í stað þeirra eru meintir stríðsglæpamenn gerðir að stjórnendum landsins. Öfgatrúar- menn hafa náð völdum í hæstarétti, sem rak einn af fáum kvenkynsdómurum fyrir að vera berhöfðuð á fundi í Bandaríkjunum, og réttur- inn hefur bannað að raddir kvenna fái að heyr- ast í útvarpi.

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.