Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2003, Side 60

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2003, Side 60
tekist að neyða starfsmenn sína til að vinna þrjá daga ókeypis í viku hverri. Fyrirtækið hafi hótað því að flytja reksturinn til Tékklands nema starfsmennirnir gerðu sem það þauð. Ekki hafa Tékkar orðið feitir á viðskiptum sínum við stórfyrirtæki ef marka má orð Þjóðverjanna tveggja. Þeir segja að eftir að Volkswagen keypti Skodaverksmiðjurnar hafi framleiðni þeirra aukist um þrjátíu prósent á fáeinum árum en kjör starfsfólksins batnað lítið. Er fólkið hafi gerst svo djarft að biðja um launa- hækkun hafi eigendurnir hótað að flytja starfsemina til Mexíkó. Þetta þýði ekki að þriðjaheimslönd þéni á ástandinu. Stórfyrirtækin þvingi tiltekin lönd til að mölva verkalýðsfélögin, lækka laun og skatta. Svo þegar næsta land bjóði enn „betur" flytji fyrirtækin þangað og fátæku löndin sitji eftir með sárt ennið. Þess vegna sé hnattvæðingin ekki hagstæð þriðja heiminum. Ekki sé nóg með að stórfyrirtækin svínbeygi starfsmenn sína, þau hafi líka ráð ríkisstjórna í hendi sér. Þess séu dæmi að fyrirtækin hafi kúgað fé út úr skattgreiðendum, heimtað niðurgreiðslur og fríðindi. Að öðrum kosti flytji þau útibú sín til annarra landa. Auk þess geti þau að miklu leyti ráðið skatthlutfalli íýms- um ríkjum. Þau berji í gegn skattfríðindi sjálfum sér til handa með þeim afleiðingum að skatta- stefna lýðræðisríkja markist að miklu leyti af þeim (stórfyrirtækjunum).7 Ég get ekki dregið aðrar ályktanir af orðum þeirra félaganna en hnattvæðingin og fjölþjóðafyrir- tækin ógni þæði lýðræðinu og markaðnum.8 Jafnframt eru þau skilgetin afkvæmi markaðarins, en eins og máltækið segir: „sjaldan launar kálfur ofeldið". Nokkuð svipaða gagnrýni má finna hjá hagfræðingnum Rune Skarstein. Hann segir að hnattvæðingin hafi haft í för með sér stóraukin völd viðskiptaauðvaldsins (finanskapitals). Fjár- málafyrirtæki geti flutt milljarða milli landa með því að ýta á einn tölvutakka. Um leið sé pen- ingamarkaðurinn í litlum tengslum við fram- leiðslugeirann. Staðan á peningamarkaðnum ráðist því að litlu leyti af raunverulegum verð- mætum. Smátaugatruflun hjá fjármálaspekúl- öntum geti hrint af stað keðju atburða sem geti haft örlagaríkar afleiðingar fyrir framleiðslugeir- ann. Því sé hinn alþjóðlegi peningamarkaður efnahagslega „irrasjónell" og geti haft skelfi- legar afleiðingar fyrir efnahagsafkomu heims- ins.9 Skarstein er vinstrimaður og það munu Þjóðverjarnir báðir vera. Gagnstætt þeim gagnrýna Soros, Korten og Willoch hnattvæð- inguna frá hægri. Þeir þremenningar eiga sér ýmsa sálufélaga, meðal þeirra eru íhaldsjálk- arnir Samuel Huntington og John Gray. Hunt- ington ræðir þá staðhæfingu frjálshyggju- manna að alþjóðleg viðskipti dragi úr líkum á styrjöldum. Því hnattvæddari sem viðskiptin verði, því friðsælli verði heimurinn. En þetta er alrangt, segir ameríski íhaldskarlinn. Heims- viðskiptin höfðu aldrei verið frjálsari en árið 1913, samt varð heimsstyrjöld ári síðar.10 Gray, sem er breskur heimspekingur, tekur svolítið annan pól í hæðina. Hann bendir á að hnattvæðingin hafi verið hvalreki á fjörur hryðjuverkamanna, glæpahringja og dópsala. Kapítalisminn þurfi ekki frjálsan heimsmarkað til að virka, fremur hið gagnstæða. Kerfið þarfnist friðar og öryggis auk skynsamlegra reglna fyrir kaupsýslu. En hnattvæðingin ógni friði, öryggi og traustum viðskiptum og sé því kerfinu hættuleg. Auk þess sé trúin á töfra- mátt markaðarins villutrú sem troðið sé upp á heiminn nauðugan viljugan. Frjálshyggjan sé andlega skyld marxismanum og byggist eins og hann á framfara-hjátrú og hnattvæðingar- dýrkun." Það má svo fylgja sögunni að ég spyrti marxisma og frjálshyggju saman í Dag- blaðinu sáluga þegar árið 1979. Gott er að eiga góða sporgengla!12 Nefna má að marxistar töldu að Fróðafriður myndi ríkja í heimi sósíal- ismans, samanber kenningar frjálshyggjunnar um friðsama veröld hinna frjálsu heimsvið- skipta. Margt er líkt með skyldum. Ég hef rætt gagnrýni vinstri- og hægrimanna á hnattvæðingu og hyggst nú rekja krítik miðju- manns, hagfræðingsins Josephs Stiglitz. Að hans mati eiga hagfræðikreddur frjálshyggjunn- ar sök á ýmsu sem miður fer í hnattvæðingu samtímans. Nóbelshafinn er ómyrkur í máli er hann sakar Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um mark- aðs-strangtrúarstefnu. Sjóðurinn gefi sér fyrir- fram að frjáls markaður sé ævinlega lausnin á öllum efnahagsvanda. Starfsmenn hans skilji ekki að frjáls markaður virki ekki almennilega við skilyrði þar sem upplýsingar manna eru tak- markaðar. Stiglitz bætir við að upplýsingar geti aldrei verið annað en takmarkaðar, því geti hinn frjálsi markaður aldrei virkað fullkomlega. Ekki er furða þótt menn tali um hina ósýnilegu hönd markaðarins, hún er nefnilega ekki til, segir Stiglitz. Til að gera illt verra nenni sjóðsmenn ekki að kynna sér sérstakar aðstæður í einstök- um ríkjum. Þess séu dæmi að þeir hafi Ijósritað skýrslur um land X og yfirfært yfir á land Y án þess að vita neitt um Y. Þessi kreddutrú hafi leitt til þess að sjóðurinn hafi þvingað Austur- Asíuríkin til opinbers sparnaðar sem lausn á kreppu áranna rétt fyrir aldamót. En sjóðs- mönnum hafi yfirsést sú staðreynd að gróði hafi verið á fjárlögum í þessum löndum og að rætur kreppunnar hafi ekki verið hjá ríkinu held- ur einkafyrirtækjum. Ábyrgðarlaus einkafyrir- tæki höfðu ástundað fjárglæfrastefnu og spek- úlasjónir, ekki síst í fasteignum, að sögn Stig- litz. Ekki fær stefna sjóðsins í málefnum Rúss- lands betri einkunn hjá nóbeishafanum. Hann segir að ráðgjafar sjóðsins hafi skipst í tvær fylkingar, markaðsdýrkendur vildu „sjokk- terapíu", það er „einkavæðingu strax í gær".13 Um þetta deila hinir lærðu og hefur staðið mik- ill styrr um Stiglitz síðustu misserin. Alltént hafa glópar glóbalíseringarinnar gott

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.