Gripla - 2019, Blaðsíða 245
245
HJALTI HUGASON
„aLLt HafÐI annan rÓM […]“
kvæði Bjarna Borgfirðingaskálds um hrörnun íslands
aldasöngur eftir Bjarna Jónsson Borgfirðingaskáld er nú á dögum
líklega eitt af þekktari 17. aldar kvæðum hérlendum, þegar undan er
skilinn kveðskapur Hallgríms Péturssonar og nokkurra annarra helstu
skálda barokktímans svo sem Einars Sigurðssonar í Eydölum og Stefáns
ólafssonar í Vallanesi. En miðað við þessi lærðu skáld var Bjarni nær því
að vera alþýðuskáld.1 Ástæður þess eru einkum þær að Sigurður nordal
tók kvæðið upp í kennslubók sína, Íslenzka lestrarbók 1400–1900, sem
kom út 1924 og 1931.2 Hún var notuð víða í skólum a.m.k. þar til arftaki
hennar, Íslenzk lestrarbók 1750–1930, kom út 1942.3 Hluta kvæðisins birti
Sigurður og samverkafólk hans svo síðar í Sýnisbók íslenzkra bókmennta
til miðrar átjándu aldar 1953.4 Með þessum bókum varð kvæðið hluti af
1 Sjá Margrét Eggertsdóttir, Barokkmeistarinn: List og lærdómur í verkum Hallgríms Péturssonar,
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. rit 63 (reykjavík: Stofnun Árna Magnússonar,
2005), 109. – Margréti Eggertsdóttur er hér með þökkuð mikilvæg aðstoð og hvatning við
samningu þessarar greinar.
2 Bjarni Jónsson, „Aldasöngur“, Íslenzk lestrarbók 1400–1900, Sigurður Nordal setti saman,
2. útg. (reykjavík: Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, 1931), 42–45. Á þessum stað var
byggt á útgáfu Jóns Þorkelssonar skjalavarðar á kvæðinu (sjá síðar).
3 Íslenzk lestrarbók 1750–1930, Sigurður Nordal setti saman (Reykjavík: Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar, 1942). Jón Þorkelsson skjalavörður gaf fyrstur út Aldasöng undir fyrirsögn-
inni „Einn fagur sálmur um mismun þessarar aldar og hinnar fyrri“. Jón Þorkelsson, Om
digtningen på Island i det 15. og 16. århundrede (Kaupmannahöfn: Andr. Fred. Høst & søns
forlag, 1888), 403–405. Næst var kvæðið prentað í tímaritinu Syrpu í Winnipeg 1916 og
þá undir fyrirsögninni Gamall sálmur: Um mismun þessarar aldar og hinnar fyrri. Þar var
byggt á texta sem er varðveittur í kvæðabókarhandriti frá um 1730 sem var í eigu Þorsteins
Erlingssonar. „Gamall sálmur: Um mismun þessarar aldar og hinnar fyrri“, Syrpa 4. árg.,
3. h. ( 1916), 136–139. Sá texti var svo aftur birtur á óðfræðivefnum Braga. „Aldasöngur:
Einn fagur sálmur um mismun þessarar aldar og hinnar fyrri“, bragi.arnastofnun.is, sótt 5.
desember 2018 af http://bragi.arnastofnun.is/ljod.php?ID=1313. Kvæðið er 33 erindi á
þessum stöðum og erindin í sömu röð þótt textinn sé ekki sá sami hjá J.Þ. og í Syrpu.
4 Sýnisbók íslenzkra bókmennta til miðrar átjándu aldar, Sigurður Nordal, Guðrún P. Helga-
dóttir og Jón Jóhannesson settu saman (Reykjavík: Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds sonar
Gripla XXX (2019): 245–277