Gripla - 2019, Blaðsíða 248
GRIPLA248
kvæðið hefur verið flokkað bókmenntasögulega og settar fram efasemdir
um þá flokkun. Loks verður kannað hvort samband sé milli þeirrar félags-
legu gagnrýni og guðfræðilegu viðhorfa sem fram koma í kvæðinu og hvaða
ályktanir megi draga af því um þá guðfræði sem þar er haldið á lofti.
Geymd og bygging
Aldasöngur er varðveittur víða í handritum. Ragnheiður Margrét Guð-
munds dóttir íslenskufræðingur bar saman textann í 15 þeirra í námsritgerð
sem hún ritaði undir leiðsögn Jóns Samsonarsonar 1986. Komst hún að
þeirri niðurstöðu að fjögur þeirra væru bein afrit af öðrum varðveittum
handritum. Þeim 11 sjálfstæðu uppskriftum sem eftir stóðu skipaði hún í
þrjá flokka, A, B og C.13 í flokknum sem hún einkenndi með B eru fjögur
handrit: JS 229, 8vo, Adv. 21.7.17, JS 136, 8vo og Lbs. 3234, 8vo. Fyrstnefnda
handritið er talið elst og skrifað um 1750 en hið síðastnefnda yngst frá um
1845. Bæði Adv. 21.7.17 og JS 136, 8vo eru talin skrifuð um 1770.14 Sú gerð
kvæðisins sem varðveitt er í þessum handritum hefur að geyma flest erindi.
JS 229, 8vo og Adv. 21.7.17 hafa 37 erindi. JS 136, 8vo hefur að geyma 36
erindi. í það vantar lokaerindið sem er annars sameiginlegt öllum hinum 10
handritunum. Yngsta handritið hefur fæst erindi eða 34. í öll þessi handrit
vantar þó vissulega eitt erindi sem finna má í handritunum í A- og C-flokki
(25. erindið í A-flokki). Þá eru erindin í sömu röð í öllum þremur handrit-
unum nema 14. og 15. erindi hafa víxlast í JS 136, 8vo. í C flokki er aðeins
eitt handrit, Lbs. 957, 8vo, sem ritað var á 18. öld (lítið eitt af efni þess þó
á 17. öld) og hefur að geyma 34 erindi þar af tvö af sérefni B-flokksins.
A-flokkurinn hefur að geyma sex handrit, þar á meðal elstu uppskriftirnar
sem eru frá lokum 17. aldar. í þessum handritum eru erindin fæst eða 33.15
í fyrri hluta kvæðisins er röð erindanna svipuð í öllum handritaflokk-
13 Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir, „Aldasöngur eftir Bjarna Jónsson skálda: Textakönn-
un á kvæðinu. Handrit“, (námsritgerð, Háskóli íslands, leiðbeinandi Jón Samsonarson,
1986): án bls.-tals. í ritgerðinni er ekki að finna blaðsíðutal nema í einstökum köflum. Hér
er því vísað til hvers kafla þegar bls.-tal skortir.
14 Sama rit, „Handritaskrá“, 3–4.
15 Sama rit, „II. Handrit“, án bls.-tals. Sama rit, „Handritaskrá“, 1–2. Erindið sem vantar í
B-handritin er þannig: „Drottinn þeim ljá þú lið/ og legg til hvað þurfa við,/ svo batist
lönd og lýðir,/ létti svo hörðu stríði,/ svo að andskotinn illi/ akri þínum ei spilli.“ Jón
Þorkelsson, Om digtningen på Island, 405.