Milli mála - 2018, Page 18
AVÓKADÓ OG MAÍS
18 Milli mála 10/2018
catl.“17 Hann líkir ávextinum við stórar gráfíkjur sem séu á bragðið
eins og furuhnetur. Þegar hann víkur að stærð og mismunandi
gerðum aldinsins segir hann það vera „á stærð við stórar perur“ og
„svo bragðgott“ að betri ávöxt sé vart að finna á Nýja Spáni. Í þessari
sömu málsgrein kemur orðið fyrir með spænskri fleirtöluendingu,
-es: auacates.18 Motolinía tekur því strax til við að laga orðið að mál-
kerfi spænskunnar þar sem hljóðskipunarreglur leyfa ekki hljóða-
sambandið -tl og fyrir vikið hefur samhljóðið -l verið skrifað -e, eins
og mörg eldri ritdæmi orðsins sýna. Önnur kunn tökuorð sem lúta
sömu reglu eru xocolatl sem varð chocolate ,súkkulaði‘, og tomatl sem
varð tomate ,tómatur‘.19 Nokkrir kronikuritarar notuðu orðmyndina
aguacate í verkum sínum og gáfu þar með tóninn fyrir það sem síðar
varð en þetta er ritháttur orðsins í spænsku nú á tímum. Báðar
myndir orðsins, ahuacate og aguacate, birtast hér og hvar í textum og
frásögnum fram undir miðja 16. öld en á síðari helmingi aldarinnar
virðist seinni myndin hafa orðið ofan á.20
Þegar þessi orðmynd hafði fest sig í sessi í spænsku leið ekki á
löngu þangað til hún barst inn í önnur Evrópumál. Elsta heimild
um þessa orðmynd í frönsku er frá 1640 en þangað barst hún úr
hollensku og spænsku.21 Orðmyndin aguacate22 hverfur hins vegar
úr frönsku máli um miðbik 19. aldar og víkur23, að því er virðist,
fyrir rithættinum avocate (17. öld), avocata og síðan avocat en sú
mynd orðsins er nú notuð í frönsku. Franskir orðfræðingar telja að
breytinguna megi rekja til alþýðuskýringa og að avocat sé dregið
af spænska orðinu avocado, eða abogado.24 Tökuorðið hafi sem sagt
17 Fray Toribio de Benavente o Motolinia, Historia de los indios de la Nueva España, bls. 157. Spænska
orðsögubókin gefur upp ritháttinn abacatl í riti Motolinía og markar sem ritháttarafbrigði. DHLE
= Diccionario histórico de la lengua española, Madrid: Academia Española, 1933–1936, http://web.frl.
es/DH1936.html [sótt 15. ágúst 2018], s. v. aguacate. Sjá einnig CNDH = Corpus del nuevo dic-
cionario histórico del español, http://web.frl.es/CNDHE/ [sótt 15. desember 2018], s. v. aguacate.
18 Fray Toribio de Benavente o Motolinia, Historia de los indios de la Nueva España, bls. 157.
19 Hugo A. Mejías, Préstamos de lenguas indígenas en el español americano del siglo XVII, bls. 40.
20 CORDE.
21 TLFi = Tresor de la langue française, Paris: Gallimard, www.atilf.atilf.fr [sótt 15. desember 2018]
s. v. avocat. Alejandro Cioranescu, Los hispanismos en el francés clásico, Madrid: Anejos del boletín de
la Real Academia Española, 1987, bls. 20.
22 TLFi, s. v. aguacate.
23 „[…] aguacate, qui a été lui aussi emprunté en français (1640) avant d’être éliminé par avocat“.
DHLF = Diccionaire historique de la langue française, ritstj. Alan Rey, Paris: Le Robert, 2006, bls. 276.
24 Þess má geta að b og v er borið eins fram í spænsku (tvívaramælt raddað lokhljóð).