Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1940, Blaðsíða 88
86
nauðsynlegar aðgerðir. 2) Stýrimaður af enskum togara, sem orðið
liafði fyrir árás af þýzkum kafbát — að haldið var — var einnig
fluttur hingað á sjúkrahúsið í flugvél, mjög særður af skotsárum
á báðum höndum og 2 skot í gegnum annað lærið, og það brotið.
Náði sér á löngum tíma. 3) Háseti af enskum togara, lag'ður inn á
sjúkrahúsið með fract. tibae et fibulae.
Noröfj. Fract. ulnae t, cost. VII. & VIII. sin. 2, claviculae 3, humeri
4. Fract. ulnae og humeri á sama drengnum, 10 ára gömlum, hvor í
sitt skiptið. Hafði fengið 3. brotið rétt áður. Af jDessum brotum öll-
um og einkum því, að humerus fór í sundur við það, að hann kastaði
bolta, án þess að nota óvenjulegan kraft, að hann sagði, varð að telja
liein hans brothætt. Smærri meiðsli voru: Contusiones et vuínera
contusa 20, distorsiones 5, vulnera caesa 5, combustio femoris et
cruris sin. 1, capillitii 1.
Berufi. Fract. tibiae 2. Annar sjúklingurinn var á gangi í myrkri
og féll í grjóthrúgu. Hinn sjúklingurinn fauk af tröppum úti fyrir
húsi og kom harkalega niður á fæturna, og brotnaði önnur tibia. 1
tilfelli fract. humeri eftir fall á sléttum bala. Piltur var að ganga til
fjár, hrasaði og lenti með annað hnéð á steini og hlaut allstórt sár.
Onnur meiðsli voru smávægileg, vuln. incis., punct., contus. sam-
tals 13.
Hornafj. 30 ára stúlka var að gera hreint og stakk nál í h. hönd,
þar sem saman kemur lófi og' úlnliður. Brotnaði nálin. Daginn eftir
liljóp bólg'a og' verkur í höndina. Risti ég þá djúpt og fann nálarbrotið,
sem staðið liafði í beini. Send á Seyðisfjarðarspítala. Fékk að lokum
höndina jafngóða að mestu eftir marga mánuði. 2 litlar stúlkur, 6 og
7 ára, léku sér í heydrýlum. Ljá hafði verið stungið undir eitt drýlið,
og' er eldri telpan kastaði sér á drýlið, hjóst ljárinn í v. olnboga, fletti
ofan af olecranon og hjó væna sneið af epicondylus lateralis, svo að
liðurinn opnaðist. Þar eð sárið sýndist hreint og slétt, skolaði ég' það
með rívanól og lokaði. Næsta morgun 40° hiti. Tók sauma úr, skol-
aði með rívanól og' gaf prontósíl, en ekkert dugði. Send á Landsspí-
talann. Endaði með 20° hreyfingu í liðnurn eftir langa mæðu. Vafa-
laust yfirsjón í báðum þessum tilfellum að gefa ekki þegar prontósíl
prophylaktiskt. Prontósíl er undralyf, en ræður þó ekki við igerðir
í beinum og' sinaslíðrum, sem einu sinni hafa náð sér á strik. 17 ára
piltur skaut til marks. Spralck byssan, og lenti brot af byssulásnum í
mitt enni hans og molaði beinið. Losaði ég út beinflísar, sem inn
höfðu dalazt, og saumaði, en lokaði ekki til fulls. Hann fékk brátt háan
hifca með höfuðverk, óráði og lélegum púls. Þótti mér sennilegt, að
blætt hefði milli meninges og bjóst við banvænni meningitis. Tók ég'
j>á það ráð, á 2. degi eftir slvsið, að dæla rívanól gegnum sárið.
Virtist hann ögn skárri um kvöldið. Næsta morgun var hann stór-
um betri, daddi ég þá aftur, og um kvöldið var hann nær hitalaus.
Fór eftir það dagbatnandi og varð brátt jafngóður. ó ára stúlka datt
á höfuðið fram af tveggja mannhæða háum klettum niður í grjóturð.
Fékk heilahristing og fract. baseos cranii. Blæddi talsvert úr vinstra
eyra. Náði sér fljótt og varð jafngóð. Fract. humeri supracondyl. L