Þjóðmál - 01.06.2020, Side 9
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 7
Árið 2012 voru þrír karlmenn og þrjár
konur í framboði: Andrea Jóhanna Ólafs-
dóttir (1,80% af greiddum atkv.), Ari Trausti
Guðmundsson (8,64%), Hannes Bjarnason
(0,98%), Herdís Þorgeirsdóttir (2,63%) og
Þóra Arnórsdóttir (33,16%) gegn Ólafi Rag-
nari Grímssyni (52,78%). Kjörsókn var 69,32%
af rúmlega 235.000 á kjörskrá.
Árið 2020 Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, hlaut 89,4% greiddra atkvæða (92,2%
gildra atkvæða) en Guðmundur Franklín
Jónsson 7,6%. Kjörsókn var 66,9%, en
168.821 greiddi atkvæði. Þar af voru auð og
ógild atkvæði 5.111, eða 4.043 auðir og 1.068
ógildir. Á kjörskrá voru 252.267.
II.
Án þess að farið sé í mannjöfnuð vegna
forseta kosninga má fullyrða að fyrst árið
2012 þegar Ólafur Ragnar Grímsson bauð sig
fram í fimmta sinn hafi í raun verið tekist á
um hvort fella ætti sitjandi forseta.
Ólafur Ragnar talaði um framtíð sína í
embættinu í véfréttarstíl í áramótaávarpi
1. janúar 2012 en tók síðan af skarið um
framboð 4. mars 2012. Gaf hann til kynna að
annars blasti við óbærileg upplausn vegna
skorts á framboði einhvers sem hefði burði til
að sameina þjóðina að baki sér.
Athyglisvert er að við skýringu á úrslitum
kosninganna árin 2004 og 2012 var tekið til
við að ræða hve mörg atkvæði frambjóðendur
hefðu fengið miðað við fjölda manna á kjör-
skrá. Þá varð hlutfall Ólafs Ragnars 42,5% árið
2004 og ekki nema 35,68% árið 2012. Með
þessu var leitast við að vega að ímynd Ólafs
Ragnars sem sameiningartákns.
Skömmu fyrir kosningarnar 2004 beitti
hann synjunarvaldi forseta samkvæmt 26.
gr. stjórnarskrárinnar í fyrsta sinn – gegn
fjölmiðlalögunum. Lögin voru dregin til baka.
Á kjörtímabilinu 2008 til 2012 beitti Ólafur
Ragnar þessu valdi tvisvar gegn Icesave-
lögum og hafnaði þjóðin lögunum í bæði
skiptin í atkvæðagreiðslu.
Í kosningabaráttunni 2020 sagði Guðmundur
Franklín Jónsson að Ólafur Ragnar væri
fyrir mynd sín og talaði um sjálfan sig sem
„öryggisventil“ gagnvart ákvörðunum
alþingis. Fyrir sér vekti að beita 26. gr. stjskr.
til að stöðva framgang mála sem kæmu frá
alþingi og vísa þeim til þjóðarinnar hvort sem
fleiri eða færri skoruðu á hann að gera það.
Þegar Guðni Th. Jóhannesson ræddi spurningu
um 26. gr. heimildina og beitingu hennar brá
hann sér í gervi sagnfræðiprófessorsins og
vísaði til fordæma úr forsetasögunni. Óráðinn
fjölda fólks þyrfti til að hann velti fyrir sér að
beita heimildinni í greininni.
Sitjandi forseti gefur höggstað á sér með því
yfirleitt að ræða að með undirskriftum sé
unnt að knýja hann til að beita 26. gr. stjskr.
og synja því að staðfesta lög frá alþingi. Eina
vald kjósenda gagnvart húsbóndanum á
Bessastöðum er á kjördag. Þar fyrir utan á
forseti að sitja á friðarstóli.