Þjóðmál - 01.06.2020, Page 14
12 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
VII.
Á þessu stigi er of snemmt að fullyrða
hvernig íslenskt samfélag kemst frá hremm-
ingum heimsfaraldursins. Hægt og varlega
er hvert skrefið stigið eftir annað út úr
vandanum. Faraldurinn minnti allar þjóðir
rækilega á að engin þeirra er ein í heiminum.
Þær eiga allar mikið undir því að starfa saman
þótt ágreiningur sé um margt.
Í alþjóðlegum samanburði um viðbrögð við
veirunni standa Íslendingar vel að vígi. Héðan
hafa verið fluttar fréttir sem segja þeim sem
huga til ferðalaga eftir heimadvöl að öruggt
sé að ferðast til Íslands, sóttvarna sé gætt og
heilbrigðiskerfið sé gott. Þetta kann að örva
ferðaþjónustu að nýju.
Takmarkanir á ferðalögum hafa minnt
Íslendinga sjálfa á hve mikils virði land þeirra
og náttúrufegurðin er. Vonandi verður það
til að stuðla að meiri umhyggju við landið
á þeim stöðum sem vinsælastir eru meðal
ferðamanna.
Í byrjun júlí 2020 sagði fjármálastöðugleika-
nefnd Seðlabanka Íslands að eiginfjár- og
lausafjárstaða stóru bankanna þriggja væri
sterk. Þó að óvissa ríkti um raunvirði útlána-
safns fjármálafyrirtækja við núverandi
aðstæður benti sviðsmyndagreining Seðla-
bankans til þess að eiginfjárstaða þeirra
stæðist álagið vel.
Kröfur til eiginfjárstöðu stóru bankanna eru
reistar á reynslu bankahrunsins 2008.
Undir lok júní 2020 sendi fjármála- og
efnahagsráðuneytið frá sér tilkynningu
um að nær allar mótvægisaðgerðir vegna
COVID-19-heimsfaraldursins væru komnar
til framkvæmda. Eftir stæði greiðsla launa
á uppsagnarfresti, en stefnt væri að því að
fyrsti hluti kæmi til greiðslu fyrir 20. júlí,
og stuðningslán en lögð væri lokahönd á
umsóknargátt vegna lánanna.
Þá kom fram að meirihluti fyrirtækja væri
ánægður með aðgerðirnar samkvæmt
könnun sem Gallup gerði fyrir fjármála-
og efnahagsráðuneytið í apríl og maí.
Um helmingur fyrirtækja sem þátt tók í
könnun inni teldi sig vel í stakk búinn til
að takast á við tímabundin áföll á næstu
mánuðum, en innan við fjórðungur stæði
illa. Hátt hlutfall fyrirtækja sem teldi stöðu
sína ágæta virtist endurspeglast í minni
eftirspurn eftir viðbótar- og stuðningslánum
og frestunum skattgreiðslna en búist hafði
verið við í upphafi. Þetta gæti bent til þess
að lausa fjárvandi fyrirtækja væri ekki jafn
alvarlegur og óttast var um tíma, m.a. vegna
annarra aðgerða.
Frá 15. júní 2020 var öllum ferðamönnum
sem komu til landsins boðið að fara í skimun
fyrir COVID-19 við landamærin eða að fara í
14 daga sóttkví. Mánuði síðar höfðu tæplega
49.000 ferðamenn komið til landsins og
höfðu samtals 36.738 próf verið tekin. Af
þeim greindust 83 sýni jákvæð. Virk smit voru
12 en rúmlega 60 greindust með gömul og
óvirk smit.
Þessi krafa um skimun eða sóttkví náði aldrei
til ferðamanna frá Færeyjum og Grænlandi
og 16. júlí 2020 bættust Danmörk, Noregur,
Finnland og Þýskaland í hóp „öruggra“ ríkja.
Þannig opnaðist landið stig af stigi og ferða-
menn sáust að nýju á götum Reykjavíkur og
annars staðar. Fjarvera þeirra af landinu gaf
Íslendingum einstakt tækifæri til að kynnast
gífurlegum áhrifum ferðaþjónustunnar og
breytinga í hennar þágu á undanförnum 10
árum.