Þjóðmál - 01.06.2020, Page 35
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 33
Nú þegar farið er að síga á seinni hluta
kjörtímabilsins má greina ákveðna þreytu
í stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Vinstri
grænna og Framsóknarflokks. Hér á síðum
Þjóðmála hafa ráðherrar verið spurðir um
stjórnarsamstarfið og svör þeirra eru nokkurn
veginn samhljóða; að þetta hafi verið eina
raunhæfa stjórnarsamstarfið, allir séu að
vinna saman á faglegum nótum og að sam-
starfið gangi almennt vel. Það er þó ekki hjá
því komist að spyrja Óla Björn að því hvort
tónninn sé sá sami í þingmönnum.
„Ég myndi segja að samstarfið á milli stjórnar-
þingmanna hafi að flestu leyti verið gott, í það
minnsta í nefndum þingsins,“ svarar Óli Björn
að bragði og nefnir sem dæmi að samstarf
stjórnarþingmanna gangi vel í efnahags- og
viðskiptanefnd hvar hann gegnir forystu.
„Vissulega er þó tekist á, við erum ólík og
með ólíkar skoðanir. Það hlýtur að reyna á
þingmenn VG að vinna með okkur rétt eins
og það reynir oft mjög á taugar okkar og
þolinmæði að vinna með VG. Þetta er ekki
bara spurning um grunnhugmyndafræði,
það er munur á því hvernig við nálgumst
viðfangsefni hlutanna almennt. Við fórum inn
í þetta meirihlutasamstarf vitandi það að það
myndi reyna á okkur og að við yrðum oft að
draga andann djúpt. Það hefur þurft. Þetta er
auðvitað misjafnlega erfitt fyrir einstaka
þing menn Sjálfstæðisflokksins, erfiðara fyrir
suma.“
Eins og hverja?
„Ég hef oft þurft að draga andann djúpt og
telja upp að tíu,“ segir Óli Björn.
„En sem fyrr segir vissum við þetta þegar við
lögðum af stað í þetta samstarf. Við vissum
þó líka að það yrðu ekki gerðar róttækar
breytingar á mikilvægum þáttum, til dæmis
að það yrðu ekki gerðar kerfisbreytingar á
skattkerfinu og heilbrigðiskerfinu. Við vissum
að takmarkið væri að halda sjó og mynda
efnahagslegan stöðugleika, það tókst okkur
fram að þeim faraldri sem nú gengur yfir.“
Heilbrigðiskerfið:
Óhagkvæmari rekstur – verri þjónusta
En nú þarf að gera breytingar til hins betra á
mörgum sviðum, til dæmis í heilbrigðiskerfinu.
Eru sjálfstæðismenn sáttir við þá þróun sem er
að eiga sér stað þar undir stjórn VG?
„Ég hef áður gagnrýnt það opinberlega
að það hafa verið stigin skref í tíð þessarar
ríkisstjórnar sem gera það að verkum að við
erum að reka heilbrigðiskerfið með
óhagkvæmari hætti en við gætum gert og
um leið að veita verri þjónustu en við gætum
veitt,“ segir Óli Björn.
„Það er að miklu leyti vegna þess að skipu-
lega, meðvitað eða ekki, hafa verið lagðir
steinar í götu einkaframtaksins. Það kemur
mér sífellt á óvart, þó að ég ætti að vita betur,
hvað vinstrimenn hafa mikla andúð á einka-
rekstri, t.d. í heilbrigðisþjónustunni, þegar
varðstaðan á að vera um hið sameiginlega
tryggingarkerfi. Við erum öll sjúkratryggð og
eigum kröfur til þess að fá ákveðna heil-
brigðisþjónustu þegar við þurfum á að halda,
óháð búsetu og efnahag. Það er sú afstaða
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur tekið.“
Óli Björn segir að þá þjónustu eigi að veita
með eins hagkvæmum hætti og hægt er.
„Það þýðir að við verðum að nýta þau
tækifæri sem til eru, ekki bara innan ríkis-
rekstursins heldur líka einkaframtaksins,“
segir Óli Björn og bætir við að einnig sé
mikilvægt að veita þeim einstaklingum sem
hafa menntað sig á þessu sviði fjölbreyttari
atvinnumöguleika ef hugur þeirra standi til
þess að standa á eigin fótum.
„Enginn tapar á því heldur græða allir, ríkis-
sjóður og skattgreiðendur, því fjármagnið er
nýtt með hagkvæmari hætti. Þeir sem þurfa
á heilbrigðisþjónustunni að halda græða á
því að þjónustan verður betri vegna þeirrar
samkeppni sem myndast,“ segir Óli Björn.
„Þetta sáum við gerast þegar Kristján Þór
Júlíusson, þá heilbrigðisráðherra, gjörbreytti
fjármögnun heilsugæslu á höfuðborgar-
svæðinu þannig að fjármagnið fylgdi þeim
íbúum sem skráðir eru á hverja heilsugæslu-