Þjóðmál - 01.06.2020, Qupperneq 36
34 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
stöð. Þá spruttu upp fleiri einkareknar
heilsugæslustöðvar og biðlistar hurfu. Þannig
að fyrirmyndin er fyrir hendi og við eigum að
gera meira af þessu.“
Þetta hljómar allt rétt og skynsamlegt, en mun
varla nást í ríkisstjórn með VG, er það?
„Nei, því miður sé ég það ekki gerast,“ segir
Óli Björn.
„Við þurfum að horfast í augu við það, bæði
þingflokkur Sjálfstæðisflokksins og flokkurinn
í heild, að okkur hefur ekki tekist nægilega
vel að sannfæra samstarfsflokk okkar né heldur
almenning um það hversu mikilvægt það
er að vera með öflugt heilbrigðiskerfi, sem
miðar ekki bara við kerfið sjálft og þarfir þess,
heldur við þarfir hinna sjúkratryggðu. Þegar
málið er nálgast út frá hagsmunum sjúkra-
tryggðra fæst annað skipulag en verið hefur.
Þetta á að snúast um að tryggja ákveðna
þjónustu en ekki hvort einhver opinber
stofnun hefur nægilega fjármuni. Krafan um
að nýta fjármunina með betri hætti verður
þá háværari og kerfið skilvirkara. Við fáum
meira fyrir hverja krónu sem við setjum inn í
heilbrigðiskerfið ef það er keppt innan þess
á grundvelli þess að tryggja hagsmuni hinna
sjúkratryggðu. “
Uppstokkun á tekjumódeli ríkisins
Gerðar hafa þó verið grundvallarbreytingar
á tekjuskattskerfinu. Við gerð Lífskjarasamn-
ingsins fyrir rúmu ári var á ný tekið upp
þriggja þrepa tekjuskattskerfi, þó þannig að
fyrsta þrepið var lægra en verið hefur. Það
féll í hlut Óla Björns að leiða þá vinnu sem
formaður efnahags- og viðskiptanefndar.
„Það er kannski dæmi um að þurfa að gera
málamiðlun við sjálfan sig,“ segir Óli Björn.
„Ég hef aldrei talað fyrir þrepaskiptu
tekjuskattskerfi heldur flötum tekjuskatti
með stiglækkandi persónuafslætti eða skatt-
leysismörkum eftir tekjum. Ég tel það mun
skynsamlegra, skilvirkara og um leið rétt-
látara kerfi. Við fórum hins vegar í aðra átt.
Niðurstaðan var að innleiða hér nýtt þrep,
lægra þrep. Það var erfitt fyrir mig en á móti
kom að við lækkum tekjuskatt á einstaklinga
um 21 milljarð króna á ári. Á móti kemur, og
ég geri mér grein fyrir því, að þrepaskiptingin
gerir það síðan að verkum að það verður
auðveldara fyrir þá sem starfa hér við Austur-
völl hverju sinni að hækka skatta með því að
skrúfa upp einstök þrep.“
Nú er þrepaskiptingin sjálf innan við tíu ára
gömul. Er hún búin að festa sig í sessi óháð því
hvort þrepin eru tvö, þrjú eða fleiri?
„... tryggingargjaldið er vondur skattur, það er eins vondur skattur og hugsast
getur, verri en margþrepa tekju skattur. Þetta er skattur á að hafa fólk í vinnu og
það þarf að finna aðrar leiðir fyrir ríkissjóð til að fjármagna sig til lengri tíma.“