Þjóðmál - 01.06.2020, Blaðsíða 39
ÞJÓÐMÁL Sumar 2020 37
Hugmyndafræðileg
endur nýjun nauðsynleg
Ætla má að pólitískar línur flokkanna sem nú sitja á Alþingi skýrist yfir veturinn þar sem
framundan er kosningavetur.
„Í aðdraganda kosninga verðum við sem erum í liði hinna borgaralegu afla, erum tals-
menn opinna og frjálsra viðskipta, talsmenn atvinnulífsins og baráttumenn fyrir því að
koma skikki á ríkisreksturinn, að skerpa málflutning okkar, gera hann beittari og umfram
allt heilsteyptari,“ segir Óli Björn spurður um það sem er fram undan.
„Í núverandi efnahagsástandi eru fólgin mikil tækifæri. Sumt af því sem var til grundvallar
þeirri stefnu sem lögð var við stofnum Sjálfstæðisflokksins 1929 á ekki endilega við í dag
en grunnhugmyndin er alltaf til staðar og á henni byggjum við. Sjálfstæðisflokkurinn á
að nýta þetta tækifæri til að endurnýja þann hugmyndafræðilega grunn sem við höfum
byggt á. Það verður meðal annars hægt að gera á landsfundi í nóvember. Við eigum að
nota hann sem upptaktinn í því að endurnýja hugmyndafræðigrunn Sjálfstæðisflokksins
í stað þess að eyða allri orkunni í að búa til enn eina ályktunina um menntamál, atvinnu-
mál og svo framvegis. Við eigum fyrst og síðast að leggja grunninn að framtíðarsýn til
næstu áratuga og hvernig samfélag við viljum að mótist hér á grunni sjálfstæðisstefnunnar.
Hún þarf auðvitað að fá að þróast í takt við nýja tíma.“
Óli Björn segir að stjórnmálamenn eigi það til að verða of praktískir, sérstaklega þegar
þeir verði ráðherrar, og láta hugsjónirnar víkja til hliðar.
„Þess vegna er mikilvægt að við nýtum þessi tækifæri til að hugsa hlutina upp á nýtt,
tekjustofna ríkisins og svo framvegis. Við þurfum að hugsa skipulag heilbrigðismála og
menntamála upp á nýtt af því að við ætlum að tryggja hér á sama tíma öflugt velferðar-
kerfi og samkeppnishæft atvinnulíf og þar með góð lífskjör. Þetta er verkefnið og það
er enginn sem leysir það betur en Sjálfstæðisflokkurinn. En við leysum það ekki nema
með því að fara í gegnum hugmyndafræðilega endurnýjun. Þá ég ekki við að kollvarpa
grunn hugmyndum heldur að minna okkur á hvaðan við erum að koma og hvert við
erum að fara. Þannig mörkum við stefnuna til lengri tíma.“
Óli Björn segir að ólíkt öðrum flokkum sé Sjálfstæðisflokkurinn í þeirri öfundsverðu stöðu
að vera með margt ungt og hæfileikaríkt fólk sem hægt sé að tefla fram á komandi árum.
„Við sem eldri erum eigum að vera í því að búa til jarðveg og ryðja brautina fyrir þetta
unga fólk,“ segir Óli Björn.
„Við höfum ekki alltaf sömu sýn en það skýrist af kynslóðamun. Við gömlu þursarnir
þurfum að átta okkur á því. En við byggjum hugmyndir okkar og skoðanir á sömu hug-
myndafræði. Við eigum að tryggja að ungt fólk sjái tilgang í því að starfa í stjórnmálum,
að við búum til andrúmsloft og jarðveg fyrir það þannig að það sé eftir sóknarvert, sem
það er ekki endilega í dag. Þegar ég er að tala við ungt fólk og hvetja það til að leggja
stjórnmálin fyrir sig, horfa mörg þeirra skringilega á mig og spyrja til hvers þau ættu
að gera það, tækifærin séu annars staðar. Ég skil það sjónarmið mjög vel. En það er þó
mikilvægt að það sé öflugt hugsjónarfólk á Alþingi, í borgarstjórn og í sveitarstjórnum.“