Þjóðmál - 01.06.2020, Qupperneq 46
44 ÞJÓÐMÁL Sumar 2020
Fjölmörg tækifæri á sviði
heilbrigðis- og líftæknimála
Þekking Íslendinga hefur verið mikil í tengslum
við heilbrigðismál, rekstur og rannsóknir hjá
Landspítala, innan ýmissa heilbrigðisstofnana
og hjá sjálfstætt starfandi fyrirtækjum á
þessu sviði. Síðast en ekki síst má nefna
fyrirtæki á sviði erfðatækni og lyfjaþróunar.
Litið hefur verið á heilbrigðis- og velferðar-
mál sem byrði og kostnað á fjárlögum. Fram
undan virðist vera nánast óstöðvandi þörf
fyrir aukin útgjöld en aukin tækni þekking,
m.a. þróun stafrænna miðla og fjórða iðn-
byltingin, getur lækkað kostnað og aukið
hagkvæmni í þessum geira.
Á síðustu misserum hefur greinarhöfundur
ásamt Hans Guttormi Þormar, Hannesi
Ottóssyni og fleirum, meðal annars Samtökum
iðnaðarins og og Íslandsstofu, kannað
möguleika á stofnun líf- og heilbrigðis-
tækniklasa sem gæti stuðlað að aukinni
nýtingu tækifæra sem við höfum á þessu
sviði. Oft hefur þetta verið rætt og skoðað
í gegnum árin en lítið orðið um formlegan
samstarfsvettvang. Þekking Íslendinga
hefur verið mikil í tengslum við heilbrigðis-
menntun og rekstur Landspítala og fleiri
heilbrigðisstofnana og síðan fyrirtækja á sviði
erfðatækni og lyfjaþróunar. Smæð landsins,
góð menntun starfsfólks í heilbrigðis-
vísindum víða um heim og sterk alþjóðleg
tengsl skapa einnig fjölmörg tækifæri.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, hefur
bent á nokkur dæmi um ný viðhorf sem hafa
komið upp í tengslum við COVID-baráttuna.
Sett var upp COVID-göngudeildarþjónusta
og í raun var um fjargöngudeildarþjónustu
að ræða. Einnig hefur heimsóknabann
aðstandenda kallað á möguleika á fjarfunda-
búnaði fyrir inniliggjandi sjúklinga og fyrir
eldri borgara á hjúkrunarheimilum.
Sjá má fyrir sér fjölskyldumiðstöðvar á
sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum tengdar
fjarfundabúnaði. Fyrir framan okkur eru
stórkostleg tækifæri til atvinnusköpunar og
útflutningstekna fyrir samfélagið þegar horft
er til vandamála heimsins og tækniþróunar
á þessu sviði. Heilbrigðismál snúast ekki
eingöngu um velferð og heilbrigði heldur
einnig tækifæri til verðmætasköpunar og
hagvaxtar.
Um þessi verkefni getur heilbrigðis- og
líftækniklasi snúist. Að auka samstarf, byggja
upp sterkara tengslanet og vera suðupottur
nýrra verkefna og fyrirtækja. Þetta hefur
tekist vel með sjávarklasa og tækifæri bláa
hagkerfisins, þar sem Þór Sigfússon hefur lyft
grettistaki. Ef skilgreina má heilbrigðis- og
líftækni sem rauða og græna hagkerfið eru
ekki síður tækifæri þar en í bláa hagkerfinu.
Sjávargeirinn, orkugeirinn, ferðageirinn og
fjármálageirinn eru með sína klasa, en með
sambærilegu samstarfi má styrkja verulega
stöðu heilbrigðis- og líftæknimála á þessu
sviði. Útflutnings- og markaðsráð mat aukin
útflutningstækifæri á þessu sviði einna mest
af öllum greinum næsta áratuginn. Óplægður
akur sem tími er kominn til að nýta.
Nefna má nokkur dæmi um verkefni og
fyrirtæki sem hafa verið í þróun á þessu sviði
og sum náð umtalsverðum árangri. Ég nefni
hér aðeins örfá dæmi og vona að nokkuð rétt
sé farið með upplýsingar um þessi félög og
biðst þá velvirðingar ef einhverra ónákvæmni
gætir.